Sport

Mourinho býður Real Madrid krafta sína

Sindri Sverrisson skrifar
Jose Mourinho virðist vilja snúa aftur til Real Madrid.
Jose Mourinho virðist vilja snúa aftur til Real Madrid. Getty/Valter Gouveia

Talið er líklegt að Real Madrid ráði nýjan þjálfara í stað Alvaro Arbeloa í sumar og sá möguleiki hefur nú verið nefndur að Portúgalinn Jose Mourinho snúi aftur, þrettán árum eftir að hann fór frá félaginu.

Spænski miðillinn Diario AS fullyrðir að Jorge Mendes, umboðsmaður Mourinho, sé búinn að setja sig í samband við Madridinga til að taka af allan vafa um að Portúgalinn standi til boða. Mourinho er reyndar þjálfari Benfica en forráðamenn Real hafa núna fengið upplýsingar um klásúlur í samningi hans við félagið.

AS tekur fram að vissulega hafi ákveðin læti verið í kringum Mourinho á þriðja og síðasta tímabili hans með félagið á sínum tíma en segir að samband hans við Florentino Pérez sé gott og að Mourinho hafi aldrei leynt aðdáun sinni á Real Madrid.

Margir kostir séu hins vegar til skoðunar hjá forráðamönnum spænska stórveldisins og að lokaákvörðun varðandi Arbeloa verði tekin á næstu vikum. Eftir fallið úr Meistaradeild Evrópu og í ljósi forskots Barcelona á toppi spænsku 1. deildarinnar þykir hins vegar líklegast að nýr þjálfari komi inn í sumar.

AS segir að nöfn á borð við Pochettino, Nagelsmann, Allegri, Klopp og Deschamps séu á meðal þeirra sem nefnd hafi verið en að nú sé í forgangi að ljúka tímabilinu með eins miklum sóma og hægt sé úr þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×