Sport

Andrea vann á Ís­lands­meti og Stefán meistari eftir æsi­legt hlaup

Sindri Sverrisson skrifar
Stefán Pálsson og Andrea Kolbeinsdóttir þekkja það að hlaupa til sigurs og eru Íslandsmeistarar 2026 í 5 km götuhlaupi.
Stefán Pálsson og Andrea Kolbeinsdóttir þekkja það að hlaupa til sigurs og eru Íslandsmeistarar 2026 í 5 km götuhlaupi. Samsett/@stebbz/@andreakolbeins

Gífurleg spenna var í Víðavangshlaupi ÍR í dag þar sem aðeins ellefu sekúndur skildu á milli 1. og 6. sætis í keppni karla. Andrea Kolbeinsdóttir bætti eigið Íslandsmet.

Stefán Pálsson úr Ármanni og Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR komu fyrst í mark og urðu þar með Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi.

Þetta var í 111. sinn sem Víðavangshlaup ÍR fer fram og eins og fyrr segir var spennan mikil í miðborg Reykjavíkur í dag.

Stefán kom í mark á 15 mínútum og 18 sekúndum, aðeins fjórum sekúndum á undan hinum 17 ára gamla Davíð Frey Magnússyni sem varð í 2. sæti. Fast á hæla þeirra komu svo kunnugleg nöfn en Þorsteinn Roy Jóhannsson varð í 3. sæti á 15:26 og Arnar Pétursson fjórði á 15:28, sekúndu á undan þeim Jökli Bjarkasyni og Stefáni Kára Smárasyni.

Andrea stórbætti metið sitt

Sigur Andreu í kvennaflokki var mun öruggari en hún kom í mark á 16:02 mínútum og setti þar með glæsilegt Íslandsmet. Hún bætti fyrra met sitt frá síðasta sumri um heilar 16 sekúndur.

Andrea var meira en mínútu á undan Halldóru Huld Ingvarsdóttur sem varð í 2. sæti á 17:16. Íris Anna Skúladóttir varð svo þriðja, þrettán sekúndum á eftir Halldóru.

Í fyrra varð Arnar Íslandsmeistari á 15:33 mínútum, sjö sekúndum á undan Jökli og þrettán sekúndum á undan Stefáni sem fagnaði sigri í dag.

Andrea hefur hins vegar einokað efsta sætið kvennamegin og nú unnið Víðavangshlaup ÍR sex ár í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×