Sport

Dag­skráin: Stúkumenn fjalla um meistarana

Sindri Sverrisson skrifar
Íslandsmeistarar Víkings fá væntanlega stóran sess í þætti kvöldsins af Stúkunni.
Íslandsmeistarar Víkings fá væntanlega stóran sess í þætti kvöldsins af Stúkunni. vísir/Anton

Eftir rosalega íþróttahelgi er öllu minna af beinum útsendingum á sportrásum Sýnar þennan mánudaginn.

Nú er komið landsleikjahlé í fótbolta karla og það er ekki fyrr en á laugardag sem að íslenska landsliðið verður í beinni útsendingu á Sýn Sport, þegar það mætir Eistlandi.

Í kvöld er hins vegar Stúkan á dagskrá, klukkan 20, á Sýn Sport Ísland en þar verður farið vel yfir hlutina eftir 24. umferð Bestu deildar karla, nú þegar Víkingar hafa varið Íslandsmeistaratitil sinn. 

Ein önnur bein útsending er í dag en það er leikur Werder Bremen og Stuttgart í efstu deild kvenna í Þýskalandi, klukkan 16 á Sýn Sport Viaplay.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×