Körfubolti

Talar stöðugt við Kristó­fer Acox: „Hræddur við að verjast mér“

Sindri Sverrisson skrifar
DeAndre Kane átti ríkan þátt í sætum sigri Grindavíkur í gærkvöld.
DeAndre Kane átti ríkan þátt í sætum sigri Grindavíkur í gærkvöld. Sýn Sport

DeAndre Kane talaði stöðugt við Kristófer Acox og skaut á hann í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis Grindavíkur og Vals í gærkvöld, í Bónus-deildinni í körfubolta, og fagnaði sætum sigri í lokin.

Kane var valinn Just Wingin' it maður leiksins og mætti í settið hjá Stefáni Árna Pálssyni og félögum í Körfuboltakvöldi. Þar fóru þeir yfir víðan völl eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.

Klippa: DeAndre Kane í settinu eftir sigur á Val

Stefán spurði Kane meðal annars út í stöðug samskipti hans við Kristófer Acox en þeir hafa ítrekað mæst síðan Kane kom í deildina fyrir þremur árum, til að mynda í úrslitaeinvíginu á fyrsta tímabili Bandaríkjamannsins með Grindavík.

„Hann er minn maður. Ég ber mikla virðingu fyrir honum,“ sagði Kane um Kristófer.

„Frá því að ég kom hingað fyrst höfum við verið að berjast í úrslitakeppninni. Þetta er þriðja árið í röð þar sem við mætum Val í úrslitakeppninni og það hefur verið gott að berjast við hann. Ég sagði honum að hann yrði að spila einhverja vörn. Ég veit ekki hvort leikplanið þeirra er að láta mig skjóta en ég get skotið. Þeir verða að spila vörn,“ sagði Kane.

En kom það honum þá ekki á óvart hve mikið pláss hann fékk?

„Jú. Ég klikkaði á nokkrum í fyrri hálfleik en skotin litu öll vel út. Þjálfarinn sagði mér að skjóta áfram af sjálfstrausti og setja þau niður, ég náði að gera það í seinni hálfleik og koma okkur yfir,“ sagði Kane sem hefur alltaf ætlað sér að færa Grindvíkingum langþráðan Íslandsmeistaratitil.

„Ég vil bara vinna,“ sagði Kane. „Ég held að það sé ekki einn maður í deildinni sem getur dekkað mig. Ég sagði það við Acox, að hann væri hræddur við að verjast mér,“ sagði Kane en viðtalið við hann má sjá í heild hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×