„Ég má ekki segja leyndarmál“ Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar 24. apríl 2026 22:48 Hörður Axel Vilhjálmsson er þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Vísir/Pawel Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum ánægður með öruggan sigur sinna kvenna á Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Einvígið er jafnt 1-1. „
Munurinn á okkur, aðallega frá síðasta leik, var aðallega ákefðin, grimmdin og samheildnin, þar sem við erum að gera þetta allt saman; sama hvort það sé inn á vellinum eða utanvallar, vörn eða sókn, þar liggur þetta og þar er okkar styrkleiki.“ sagði Hörður Axel, þjálfari Keflavíkur við Andra Má eftir sigur gegn Haukum í Keflavík í kvöld. Sofie Preetzmann byrjar inn á, mögulega eitthverjar taktískar breytingar frá síðasta leik? „Við erum með mjög margar sem geta byrjað inn á og það skiptir ekki öllu máli hver byrjar inn á eða útaf. Það var ákvörðunin sem við tókum, aðeins að losa um pressuna og það gekk bara mjög vel, enda var Sofie, ótrúlegt en satt, leikstjórnandi þegar hún var yngri.“ „Við bara gerðum rosalega vel, við vorum að lesa í hraðann og það sem þær voru að gefa okkur. Við gerðum vel, betur varnarlega heldur en í seinasta leik sem gaf okkur líka tækifæri að hlaupa hratt í bakið á þeim“ Heimakonur náðu að loka vel á Amadine Justine-Toi í kvöld, hvað gekk svo vel upp í því kerfi? „Ég má ekki segja leyndarmál,“ sagði Hörður léttur. „Haukar eru þannig lið að maður er alltaf á tánum, og þær koma til baka hérna og ná þessu niður í 14 stig í hið minnsta, við þurfum að læra af því líka og halda áfram sama hvað staðan er, við erum að spila í 40 mínútur af krafti. Eins og ég segi, við þurfum að halda áfram sama hvað og halda kúlinu.“ „Ég held við séum búin að ná sitthoru högginu núna og restin verður stál í stál, við erum tilbúin í hvað sem er.“
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Haukar Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira