Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Agnar Már Másson skrifar 25. apríl 2026 14:20 Einar Jóhannes úr Miðflokknum og Jónas Már úr Samfylkingunni. Samsett Mynd Meirihlutinn er fallinn í Kópavogi samkvæmt nýrri skoðanakönnun en þó er Sjálfstæðisflokkurinn enn stærstur. Samfylkingin og Miðflokkurinn bæta verulega við sig frá síðustu kosningum.
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir DV. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman lítillega, eða um 1,5 prósentustig, frá síðustu kosningum og stendur í 31,7 prósentum samkvæmt þessari könnun. Samfylkingin er næststærst eftir að hafa skotist upp úr 8 prósentum í kosningum árið 2022 upp í 24 prósent í dag. Í þriðja sæti er Viðreisn með 14,9 prósent (2022: 11%), en Miðflokkur bætir við sig verulega með 11% (2022: 3%). Fylgi Vinstri grænna hreyfist lítið en þeir hafa 5 prósenta fylgi (2022: 5%). Í Kópavogi er barist um ellefu sæti í sveitarstjórn og þarf því sex bæjarfulltrúa til þess að mynda meirihluta. Dreifing bæjarfulltrúa samkvæmt könnuninni væri því eftirfarandi: Sjálfstæðisflokkur: 4 Samfylkingin: 3 Viðreisn: 2 Framsókn: 1 Miðflokkur: 1 Þetta þýðir að núverandi meirihlutasamstarf Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins sé fallið. Aftur á móti gætu Sjálfstæðismenn haldið áfram samstarfinu við Framsókn með því að taka fulltrúa Miðflokksmanna inn. Sjálfstæðismenn gætu auk þess myndað tveggja flokka meirihluta með Viðreisn eða jafnvel Samfylkingu. Samfylking, Viðreisn og Framsókn gætu einnig myndað þriggja flokka samstarf samkvæmt þessari könnun. Vinir Kópavogs, sem hlutu tvo fulltrúa síðast, og Píratar, sem hlutu einn fulltrúa síðast, bjóða ekki fram í sveitarfélaginu í ár.
Kópavogur Skoðanakannanir Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Samfylkingin Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira