Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar 27. apríl 2026 07:01 Stjórnsýsla Reykjavíkurborgar virðist ekki treysta atvinnulífinu. Hún á að haga sér eins og þjónustuaðili en lætur eins og eftirlitsaðili. Atvinnulífið treystir ekki heldur borginni. Afleiðingin er augljós: tafir, vantraust, hærri kostnaður, flækjustig og verkefni sem verða aldrei að veruleika Þessu viljum við í Viðreisn snúa við. Einföld breyting sem skiptir öllu Þegar ég var bæjarstjóri í Grindavík, og stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Reykjaness, breyttum við verklagi og samskiptum við atvinnulífið. Við heimsóttum fyrirtækin í bænum og tókum mark á því sem þau sögðu. Við ákváðum að hugsa: „Já, af hverju ekki?“ í stað þess að hugsa: „Má þetta?“ eins og hefðbundin stjórnsýsla. Þetta er einföld breyting en hún skiptir öllu máli. Fólkið sem rekur fyrirtækin þekkir sína starfsemi best. Það vill standa sig vel og á skilið traust. Þegar Reykjavíkurborg sýnir það traust breytist allt. Allar ákvarðanir verða betri, ferlar hraðari og atvinnulífið finnur að það hafi samherja en ekki andstæðing hjá borginni. Of mikil áhætta að díla við borgina Reynsla margra fyrirtækja af Reykjavíkurborg er allt önnur. Atvinnulífið hefur þurft að eltast við svör, bíða eftir leyfum og afgreiðslu og taka ákvarðanir í óvissu. Ég hef heyrt sögur af fyrirtækjum sem hafa ákveðið að opna ekki starfsstöð eða fjárfesta ekki í borginni, einfaldlega vegna þess að áhættan er of mikil þegar reglur og afgreiðslutími eru ófyrirsjáanleg. Þegar borgin treystir ekki atvinnulífinu, hættir atvinnulífið að treysta borginni. Fórnarlömbin eru íbúarnir sem missa af störfum, þjónustu og fjölbreyttara mannlífi. Forgangsverkefni Viðreisnar á næsta kjörtímabili er að snúa hugarfari stjórnsýslunnar við. Frá eftirliti yfir í þjónustu, frá tortryggni yfir í traust. Borg sem er með þér í liði Skatturinn er gott fordæmi, en þar var skipulega unnið að því að breyta úr eftirlitsmenningu í þjónustumenningu eftir sameiningu skattembætta. Það skilaði ánægðari starfsmönnum og betri þjónustu við borgarana. Hlutverk borgarinnar er ekki að stýra atvinnulífinu heldur að skapa aðstæður þar sem það getur vaxið og dafnað. Það gerist með góðum innviðum, skýru skipulagi og lífsgæðum sem laða að fólk. Spurningin er ekki hvort þetta sé hægt, heldur hvort við ætlum að gera Reykjavík að borg þar sem er skemmtilegt að stofna og reka fyrirtæki. Borg sem er með þér í liði. Höfundur skipar annað sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar