Innlent

Ó­venju­legt tíma­bil klárast á dögunum

Freyja Þórisdóttir skrifar
Síðast var opið í Bláfjöllum föstudaginn síðasta, 24. apríl. Þá stóð á Facebook-síðu svæðisins að „vorfærið væri upp á sitt besta“ og allar helstu skíðaleiðir troðnar.
Síðast var opið í Bláfjöllum föstudaginn síðasta, 24. apríl. Þá stóð á Facebook-síðu svæðisins að „vorfærið væri upp á sitt besta“ og allar helstu skíðaleiðir troðnar. Facebook/Skíðasvæðin - Bláfjöll & Skálafell

Síðustu daga hefur verið lokað í Bláfjöllum og útlit er fyrir að það verði ekki meira opnað á þessu skíðatímabili. Tímabilið var mjög óvenjulegt og opnunardagar voru ekki nema um þrjátíu talsins enda mikil rigning og svo óveður. En þá daga sem var opið voru að meðaltali um áttatíu þúsund gestir í fjallinu. 

Það eru einungis þrír dagar eftir af skíðatímabilinu en veturinn var að sögn Einars Bjarnasonar, rekstrarstjóra skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli.

„Þetta var ótrúlega skrítið tímabil, byrjaði mjög seint svo rigndi þrjár vikur í desember.  Svo kom loksins snjórinn en þá vorum við í miklu basli með veður,“ segir hann og bætir við að það hafi verið um þrjátíu dagar sem voru nógu góðir til að hafa opið.

Í færslu Einars á síðu skíðasvæðisins á Facebook í dag segir að ekkert hafi skánað á svæðinu, það sé grenjandi rigning og komin stöðuvötn um allt. Líklega verði ekki opnað meira á þessu skíðatímabili, spái næstu daga líti þannig út.

„Það er ömurlegt að geta ekki notað þennan snjó sem er hérna en það er alltof á floti. Við vorum komnir með tveggja metra snjó, að okkur finnst tveimur mánuðum of seint, en svo hefur bara ringt og ringt,“ segir Einar.

Meðaltalið sjaldan hærra

Á móti kemur hafi mögulega metfjöldi fólks gert sér ferð í fjöllin að meðaltali í vetur, eða um áttatíu þúsund manns.

 „Það var alveg frábærlega vel mætt í vetur þegar var opið og ég hugsa að þetta sé eitt besta meðaltal á hvern dag sem við höfum séð enda svo fáir dagar opnir,“ segir einar en hann nefnir einnig að mætingin fari dvínandi eftir páska.

„Eftir páska sofnar þetta svolítið og það var ekkert mikið af fólki að mæta á sumardaginn fyrsta til dæmis, en það er þannig á hverju ári alveg sama hvernig tímabilið er,“ segir hann. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×