Álftnesingar mæta afgangi Rakel Margrét Viggósdóttir skrifar 29. apríl 2026 07:31 Það er eitthvað undarlegt við framkvæmdir á Álftanesi. Stundum virkar eins og verið sé að leika í stað þess að framkvæma. Verktakar mæta með tæki, grafa djúpa holu og skilja svo svæðið eftir mannlaust mánuðum saman á meðan þeir halda áfram í verkefni annars staðar í bænum með tilheyrandi raski fyrir íbúa og neikvæðum áhrifum á skólastarf. Hálfkláruð verk og hættuleg leiksvæði á Álftanesi Flestir Álftnesingar kannast við að þetta, það er ekki fyrr en athugasemdir hafa verið skrifaðar á íbúasíðuna sem eitthvað fer kannski að gerast. Að hringja eða senda pósta virkar ekki, það virðist ekki vera nógu áberandi eða mikilvægt til þess að fá áheyrn. Á meðan sitjum við Álftnesingar uppi með rask, óreiðu og jafnvel hættu langt umfram þann tíma sem raunverulega virðist þurfa til að klára verkin. Skólalóðin við Álftanesskóla er gott dæmi um ákveðið sinnuleysi sem ríkt hefur í nokkur ár. Slæmur frágangur á framkvæmdasvæðum við skólalóðina hefur skapað hættulegar aðstæður fyrir nemendur sem sækja í svæðið, í frímínútum og eftir skóla. Þar hafa börn komist í allskyns verkfæri og járnrusl sem eiga ekkert erindi á skólalóðina. Ítrekað hefur verið bent á nauðsyn þess að ganga betur frá, en á þær ábendingar er ekki hlustað. Takmarkað samráð Samráð við íbúa hefur verið afar takmarkað. Til dæmis má benda á nýtt sleppistæði við Álftanesskóla, en ítrekað var varað við þeirri lausn. Hún var rýnd af síðustu bæjarstjórn Álftaness og niðurstaðan lá fyrir, staðsetningin er ekki góð. Hún skapar þrengsli og hættu á svæði sem má alls ekki við frekari þrengingu og aukinni umferð. Lausnin tekur ekki mið af raunveruleikanum, hvort sem litið er til veðurfars eða gönguleiða barna þegar snjómokstur bregst. Þrátt fyrir það var byrjað að moka og hefur þessi nýja lausn staðið hálfkláruð mánuðum saman með tæki og holur á víð og dreif með tilheyrandi raski við leikskóla, skóla og íþróttahús. Hvert fara peningarnir Vinnulagið á Álftanesi er ekki það eina sem þarf að ræða. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur afar lítill hluti framkvæmdarfjár sveitarfélagsins farið í Álftanes. Við höfum gögn frá 2023, en þá fékk Álftanes um tíu prósent af framkvæmdarfé bæjarins. Álftnesingar borga sitt útsvar og hækkuð gjöld eins og aðrir, en uppbyggingin fer annað á meðan við sitjum eftir með holur og tæki í geymslu. Það er eðlilegt að aukið fjármagn fer í ný hverfi á meðan þau byggjast upp, en það þarf samt sem áður að gæta jafnræðis. Þótt innviðagjöld komi að hluta á móti uppbyggingu í nýjum hverfum, þá sýnir forgangsröðun framkvæmdafjárins að fjármunir og fókus bæjarstjórnarinnar liggja annars staðar en á Álftanesi. Niðurstaðan er sú að framkvæmdir á Álftanesi eru illa skipulagðar, samráð er lítið og íbúar sitja eftir með rask á meðan milljarðar renna annað.Þetta snýst ekki um skrúðgarða, glæsihýsi eða flugeldasýningu. Við viljum að verkin séu kláruð á eðlilegum tíma og umhverfinu og bæjarbúum sé sýnd virðing.Við í Samfylkingunni viljum gott samráð, skýra upplýsingagjöf og að jafnræðis sé gætt þegar kemur að framkvæmdum og frágangi í öllum Garðabæ. Höfundur skipar 3.sæti Samfylkingarinnar í Garðabæ í komandi sveitastjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar