Glufur í farsældinni: Helmingur stuðningsnets barns úti í kuldanum Lúðvík Júlíusson skrifar 29. apríl 2026 09:31 Lög um farsæld barna áttu að vera eitt stærsta framfaraspor áratugarins. Fyrir hóp foreldra og barna er raunveruleikinn hins vegar sá að hvorki „farsældin“ né „samþættingin“ ná til þeirra. Þegar farsældarlögin voru kynnt árið 2021 voru gefin fögur fyrirheit um snemmtæka íhlutun, samþætta þjónustu og að barnið væri ávallt í brennidepli. Markmiðið var göfugt en framkvæmdin undanskilur hóp barna í viðkvæmri stöðu. Við höfum búið til kerfi sem byggir á þeirri úreltu forsendu að barn eigi bara „eitt líf“ og „eitt stuðningsnet“ sem sé alfarið bundið við eitt heimilisfang. „Lögheimilis-múrinn“ og stafræn útilokun Í dag mæta foreldrar sem ekki deila lögheimili með barni sínu kerfislægum vegg sem hægt er að kalla „lögheimilis-múrinn“. Í mörgum sveitarfélögum, þar á meðal Reykjavíkurborg, er stafræn stjórnsýsla þannig uppbyggð að aðeins lögheimilisforeldri hefur aðgang að mikilvægum gáttum og samskiptum. Sveitarfélögin gera ekki ráð fyrir því að barn fái umönnun beggja foreldra sinna ef foreldrarnir búa ekki saman. Dæmi um þetta er aðgangur að Völu fyrir leikskóla og Völu fyrir dægradvöl. Bæði Reykjavíkurborg og Kópavogur tóku kerfið í notkun eingöngu með lögheimilisforeldrið í huga og lokuðu á hitt foreldrið. Öll samskipti og allar upplýsingar áttu að eiga sér stað í Völu. Reykjavík sá að sér en foreldrar í Kópavogsbæ þurftu að há harða baráttu við sveitarfélagið sem að lokum opnaði fyrir báða foreldra að hluta. Umboðsmaður Alþingis gerði ekki athugasemdir við verklag Kópavogsbæjar. Það má því segja að foreldrar hafi lagt bæði Umboðsmann Alþingis og Kópavogsbæ að velli. En foreldrar eiga ekki að sóa tímanum í baráttu við stjórnsýslu sem virðist haldin fordómum gagnvart fjölskyldumynstri sem ekki passar við gamla módelið. Foreldrar eiga að nota tímann til að hugsa um börnin sín. Fyrir foreldrið sem barnið er ekki með lögheimili hjá er niðurstaðan algjör upplýsingaóvissa. Kerfið, Alþingi og sveitarfélög, hunsa hreinlega 28. og 52. greinar barnalaga (76/2003) um rétt og skyldu beggja forsjáraðila til að koma að málefnum barnsins. Þessir aðilar hunsa einnig 18. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (19/2013) um skyldu stjórnvalda að tryggja að báðir foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á uppeldi barnsins. Foreldrið sem „gerðu-það-sjálfur“ sérfræðingur Þessi útilokun hefur alvarlegar afleiðingar. Í stað þess að fá faglega handleiðslu frá þeim sérfræðingum sem eru á launum hjá ríki og sveitarfélögum, er foreldrið neytt til að verða sinn eigin „skugga-sérfræðingur“. Foreldrið þarf að eyða ómældum tíma í að finna upp hjólið, lesa sér til um flóknar greiningar og leita leiða til að styðja barnið sitt án þess að hafa aðgang að sama stuðningi og sérfræðingum sem hinu foreldrinu standa til boða. Þetta er ekki bara tímaþjófnaður heldur veikir þetta þann stuðning sem barnið fær um helming tímans. Ef þjónustan fylgir ekki barninu inn á bæði heimili þess þá er verið að bjóða upp á slitrótta og óhagkvæma farsæld í stað heildstæðrar og samfelldrar farsældar eins og upp var lagt með. Tækifærið til ársins 2030 Nú stendur yfir vinna á Alþingi við þingsályktunartillögu um stefnu og framkvæmdaráætlun í málefnum barna til ársins 2030. Þetta gefur Alþingi og sveitarfélögum tækifæri til að leiðrétta þessa kerfisvillu. Við getum ekki beðið í sex ár í viðbót eftir því að stjórnsýslan átti sig á því að börn búa á tveimur heimilum. Við þurfum: Stafrænt jafnrétti: Báðir forsjáraðilar eiga að hafa sjálfkrafa aðgang að öllum þjónustugáttum svo þeir geti sinnt foreldrahlutverkinu. Sjálfstæð réttindi barnsins: Þjónusta og ráðgjöf verður að vera óháð stöðu eða búsetu foreldra. Hún á að fylgja barninu. Skyldubundna aðkomu: Málstjórar og tengiliðir eiga að vera lagalega skyldaðir til að virkja bæði heimili barnsins í samþættingarferlinu. Farsæld barna má ekki vera tæknilegt úrlausnarefni í Excel-skjali sveitarfélaga, Alþingis og ráðuneyta. Hún verður að vera raunveruleg fyrir öll börn óháð fjölskyldumynstri. Ég hvet Alþingi og sveitarfélög til að hætta að nota tæknilegar hindranir og úreltar hugmyndir um hlutverk feðra og mæðra sem afsökun fyrir því að skilja börn í viðkvæmri stöðu og foreldra þeirra eftir í óvissu. Það þjónar hvorki hagsmunum barnsins né samfélaginu. Höfundur er fjögurra barna faðir og viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lúðvík Júlíusson Börn og uppeldi Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar