Verðbólguþróunin í rétta átt og ætti að slá út af borðinu stóra vaxtahækkun
Verðbólgumælingin í apríl reyndist vera í lægri kantinum miðað við meðalspá sex greinenda og ólíkt þróun síðustu mánaða voru verðhækkanir ekki á breiðum grunni, en undirliðir á borð við mat, drykk, fatnað og húsgögn stóðu nánast í stað. Skuldabréfafjárfestar brugðust vel við verðbólgutölunum sem ættu að slá út af borðinu vangaveltur um að Seðlabankinn hækki vextina um 50 punkta á næsta fundi.
Tengdar fréttir
Heimilin óttast viðvarandi háa verðbólgu og flykkjast í fasta óverðtryggða vexti
Á allra síðustu mánuðum hafa orðið talsvert umskipti á lánamarkaði en samhliða því að væntingar í efnahagslífinu hafa breyst til hins verra, með auknum líkum á þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum, hafa heimilin brugðist við með því að færa sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Hrein ný lántaka heimila á slíku lánaformi hefur aldrei mælst meiri en í liðnum mánuði.
Snörp aukning verðbólgu að undanförnu lítur sumpart verr út en raunin er
Mikill meirihluti aukinnar verðbólgu á undanförnum fjórum mánuðum má rekja til þátta, einkum opinberra gjaldabreytinga og hækkun flugfargjalda, sem gefa takmarkaða vísbendingu um verðbólguþrýsting í hagkerfinu og eru utan áhrifasviðs peningastefnunefndar.