Verðlagseftirlit Viðreisnar – Gamall draugur í fylgd skattalækkunar Bergþór Ólason skrifar 29. apríl 2026 16:32 Það er fátt sem hljómar betur í eyrum almennings en þegar ríkið ákveður loksins að lækka skatta. Tillaga ríkisstjórnarinnar um að færa virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% niður í 11% er skref í rétta átt, þó tímabundið sé, enda nýtur lækkunin stuðnings allra flokka á Alþingi. Breytingin viðurkennir einfalda staðreynd: að ríkið hefur verið of þungt á bensíndælunni og að heimilin bera þann kostnað. Verst er þó að lækkunin samsvarar ekki nema um 10% af skattahækkunum stjórnvalda í desember. En svo kemur „kaupbætirinn“; heldur úldinn. Frumvarpið sem hér um ræðir og er til lokaafgreiðslu í dag, er ekki bara skattalækkun. Heldur er líka lagt til að endurvekja opinbert verðlagseftirlit – kerfi sem Íslendingar töldu sig hafa kvatt með tilheyrandi létti fyrir áratugum. Þarna er verið að opna aftur dyr að verðlagsstýringu, með öllum þeim afleiðingum sem sagan kennir okkur að fylgi slíkum æfingum fortíðar. Í nefndaráliti minnihluta er bent á að slíkt fyrirkomulag skapar óvissu, dregur úr samkeppni og getur haft beinlínis skaðleg áhrif á markaðsstarfsemi. Það er ekki tilviljun að umsagnir frá Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Samtök verslunar og þjónustu taka í sama streng: ríkisafskipti af verðmyndun grafa undan eðlilegum hvötum markaðarins og draga úr gagnsæi. Sagan er líka óþægileg fyrir þá sem vilja líta fram hjá henni. Verðlagseftirlit á Íslandi var ekki bara tæki – það var vandamál. Það skapaði skort, bjagaði verðmyndun og ýtti undir það sem kalla má „skuggahagkerfi“ þar sem raunverulegt verð fann sér aðrar leiðir. Það sem gerir málið þó sérlega áhugavert – og eiginlega dapurlegt – er hlutverk Viðreisnar. Flokkur sem hefur byggt sjálfsmynd sína á frjálsum markaði og evrópskum umbótum (eins og þau kalla það) gengur nú fremst í flokki í því að endurvekja forsjárhyggju fortíðar. Ríkisstjórnin reynir að ramma málið inn sem tímabundið og markvisst inngrip. En það er einmitt þannig sem slík kerfi byrja: sem „tímabundin“ úrræði sem festast síðan í sessi. Það er rétt að fagna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Sú lækkun skilar raunverulegum ávinningi. En að hengja á hana verðlagseftirlit er slík sending úr fortíðinni að helst mætti halda að Viðreisn hafi gengið af göflunum. Vafalaust varð þessi furðulega nálgun til á sameiginlegum fundum stjórnarflokkanna þriggja, en það er varaformaður Viðreisnar, fjármálaráðherra, sem mælir fyrir málinu. Hann er svo að vísu skilinn eftir einn úti á berangri, en enginn þingmaður stjórnarflokkanna lét svo lítið að halda ræðu við aðra umræðu málsins, sem fór fram í gær. Þá var mönnum orðið ljóst hverslags furðuverk þetta verðlagseftirlit er en þeir bara geta ekki bakkað. Það var semsagt enginn stjórnarliði sem treysti sér í ræðu til að tala fyrir verðlagseftirlitinu – það segir nokkra sögu. Við ættum að hafna þessum draugi fortíðar – en í dag mun Viðreisn sennilega fá að ráða og landsmenn allir fá að lifa með verðlagseftirliti Viðreisnar. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Alþingi Miðflokkurinn Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar