Viðskipti innlent

Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heims­vísu

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir ferðamenn sem stinga sér í Silfru virðast gífurlega ánægðir með upplifunina og hefur hún verið valin sú besta af því besta af notendum og starfsmönnum Tripadvisor.
Þeir ferðamenn sem stinga sér í Silfru virðast gífurlega ánægðir með upplifunina og hefur hún verið valin sú besta af því besta af notendum og starfsmönnum Tripadvisor. DIVE

Snorklferð DIVE í Silfru hefur verið valin besta upplifun ferðamanna í heiminum af notendum og starfsmönnum Tripadvisor, fyrir árið 2026. Ferðin í Silfru er í efsta sæti yfir það besta sem hægt er að gera í heiminum í árlegum verðlaunum fyrirtækisins en verðlaunin byggja á umsögnum ferðamanna.

Silfra bar sigur úr býtum í flokknum: „Það besta af því besta“ á heimsvísu og í undirflokknum: „Einu sinni á líftíðinni“. Um þann undirflokk segir að umræddar upplifanir séu ólíkar öllu öðru og um sé að ræða þær allra bestu upplifanir sem notendur Trip Advisor veita einkunnir.

Í tilkynningu frá Icelandia, móðurfélagi DIVE, segir að þetta sé æðsti heiður sem Tripadvisor veitir.

Silfra fékk á undanförnum tólf mánuðum rúmlega fimm þúsund umfjallanir á vefnum og er með fullt hús stiga. Í umsögnum er oft minnst á tærleika vatnsins, þá einstöku tilfinningu að fljóta á milli heimsálfa og þá persónulegu þjónustu sem fólk upplifði alla ferðina.

Í öðru sæti er kanóferð í Wales og í því þriðja er fjögurra daga ferð til Machu Picchu í Perú.

„Þessi viðurkenning er okkur ótrúlega mikilvæg því hún kemur beint frá gestum okkar,“ sagði Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, í áðurnefndri tilkynningu.

„Teymið okkar leggur metnað sinn í að veita örugga, persónulega og ógleymanlega upplifun í einu magnaðasta náttúruundri jarðar. Að ferðin skuli vera valin sú besta í heimi er heiður sem við deilum með hverjum einasta leiðsögumanni og þeim fjölmörgu gestum sem hafa treyst okkur fyrir því að gera Íslandsferðina sína ógleymanlega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×