Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 1. maí 2026 21:33 Njarðvík tryggði sér leik fimm á þriðjudaginn kemur. Vísir/Jón Gautur Grindavík tók á móti Njarðvík í fjórða leik liðana í undanúrslitum Bónus deild kvenna í HS Orku höllinni í kvöld. Grindavík gat tryggt sig í úrslit með sigri á meðan Njarðvík varð að vinna til að fara í leik fimm. Eftir mikla dramatík náði Njarðvík að tryggja sér leik fimm með frábærum fjórða leikhluta þar sem þær héldu Grindavík í þremur stigum og fóru með fjögurra stiga sigur 68-72. Leikurinn fór fjörlega af stað og voru bæði lið að fljót að setja stig á töfluna. Farhiya Abdi var gríðarlega öflug í liði Grindavíkur og raðaði niður stigum í upphafi og var kominn með 12 stig eftir rúmlega fimm mínútna leik fyrir Grindavík. Það var skotsýning milli liðana þar sem þristarnir flugu á milli. Það var því við hæfi að fyrsti leikhluti skyldi vera lokaður með einum slíkum frá Dani Rodriguez og Njarðvík leiddi eftir fyrsta leikhluta 27-30. Grindavík byrjaði annan leikhluta af miklum krafti og voru snemma búnar að ná yfirhöndinni í leiknum. Farhiya Abdi var þar fremst í flokki og var búin að koma 20 stigum á töfluna fyrir Grindavík um miðjan leikhluta. Njarðvík barði aðeins frá sér undir lok leikhlutans en Grindavík fóru með forystu inn í búningsklefa í hálfleik. Farhiya Abdi sem átti flautu þrist sem tryggði Grindavík í átta stiga forystu 50-42 í hálfleik. Grindavík mætti mun grimmari til leiks í seinni hálfleiknum og réðu lögum og lofum. Þær náðu að stöðva allt það sem Njarðvík ætlaði sér og voru að koma góðum stigum á töfluna að auki. Heimakonur náðu mest tólf stiga forskoti þegar best lét í leikhlutanum en Njarðvík náði að koma leiknum í átta stig fyrir lok leikhlutans 65-57. Það var mikil spenna í fjórða leikhluta og maður sá fljótt að hvert kerfi fór að telja aðeins meira og hvert stopp, hvert stig taldi örlítið meira. Varnarleikur Njarðvíkur small fullkomlega í fjórða leikhluta og þær héldu Grindavík í þremur stigum og náðu að snúa leiknum sér í vil og tryggðu sér oddaleik með fjögura stiga sigri 68-72. Atvik leiksins Varnarleikur Njarðvíkur í fjórða leikhluta. Þær halda Grindavík í þremur stigum sem er nánast óheyrt. Frábærlega gert hjá Njarðvík sem tryggði sér oddaleik á þriðjudaginn. Stjörnur og skúrkarDanielle Rodriguez var öflug í liði Njarðvíkur og endaði með 24 stig en hún tók einnig 13 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.Farhiya Abdi var frábær í fyrri hálfleik fyrir Grindavík en dró aðeins af henni í seinni. Endaði stigahæst á vellinum með 28 stig.DómararnirKristinn Óskars, Bjarki Þór og Davíð Kristján voru dómarar leiksins í kvöld. Skiptar skoðanir með þeirra frammistöðu í kvöld en eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið fínt og setja punktinn þar.Stemning og umgjörðÞað var hörku mæting í HS Orku höllina í kvöld. Myndaðist flott stemning. Ánægjulegt að sjá Njarðvíkingana sem fjölmenntu í kvöld og fylltu sitt hólf. Bónus-deild karla Grindavík UMF Njarðvík