Upp­gjörið: Kefla­vík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn

Hjörvar Ólafsson skrifar
Krystal-Jade Freeman var stigahæst í liði Hauka með 24 stig. 
Krystal-Jade Freeman var stigahæst í liði Hauka með 24 stig.  Vísir/Pawel

Haukar sýndu mátt sinn og megin þegar liðið bar sigurorð af Keflavík, 72-98, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Haukar fara þar af leiðandi með 3-1 sigur af hólmi í einvígi liðinna og eru komnir í úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Grindavík. 

Leikmenn Hauka spiluðu sterka vörn í þessum leik og þvinguðu Keflvíkinga hvað eftir annað í tapaða bolta og erfiðar sóknaraðgerðir. Sóknarleikur Keflavíkur var stirður í leiknum og heimakonur áttu á köflum í mestu vandræðum með að bera boltann upp. 

Til þess að bæta gráu ofan á svart fyrir Keflavík snéri Keishana Washington sig á ökkla i upphafi annars leikhluta og gat ekki spilað meira með í leiknum vegna þeirra meiðsla. 

Það gerði slakan sóknarleik Keflavíkur enn verri og það var í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda eftir að Haukar náðu undirtökunum í leiknum um miðjan fyrsta leikhluta. 

Það var skarð fyrir skildi fyrir Keflavík þegar Keishana Washington þurfti að fara meidd af velli. Vísir/Pawel

Haukar fengu framlag úr mörgum áttum í þessum leik en fimm leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira og liðsvörnin var framúrskarandi allan leikinn. 

Keflavík náði tveimur áhlaupum í seinni hálfleik en heimakonur náðu þó aldrei að velgja gestunum almennilega undir uggum. Það er erfitt að ætlast til þess að Keflavík nái að grafa sig úr þeirri holu sem liðið var komið í án þess að hafa Keishönu Washington innanborðs. 

Það kemur í ljós á þriðjudaginn kemur hvort það verður Njarðvík eða Grindavík sem mætir Haukum í úrslitaeinvíginu en þar geta Haukar varið Íslandsmeistaratitil sinn. 

Keflavík er hins vegar komin í sumarfrí en afrakstur liðsins á tímabilinu er bikarmeistaratitill, sjötta sæti í gríðarlega jafnri deildarkeppni og sæti í undanúrslitum. 

Sigrún Björg Ólafsdóttir setti niður fjóra þrista í leiknum og skoraði alls 16 stig. Vísir/Pawel

Emil Barja: Náðum upp sterkri vörn 

„Við komum af krafti inn í þennan leik og við vorum ákveðnar í að gera betur en í síðasta leik hér í Keflavík. Við vorum búnir að fara vel yfir svæðisvörnina þeirra og þau vopn sem þær hafa í sóknarleiknum,“ sagði Emil Barja að leik loknum. 

„Við lögðum mikla áherslu á að stoppa slipin þeirra sem við höfðum verið í vandræðum með í seríunni og það tókst betur en áður. Við náðum upp góðri vörn og það skilaði sér síðan í sjálfstrausti í sóknarleiknum,“ sagði Emil enn fremur.

„Það er okkar markmið að verða Íslandsmeistari aftur og nú erum við skrefi nær því. Ég bara veit ekki hvort að það henti okkur að mæta Njarðvík eða Grindavík í úrslitum. Við bíðum bara og sjáum,“ sagði hann inntur eftir óskamótherja í úrslitaseríunni. 

Hörður Axel: Veit ekki hvort ég haldi áfram

„Það er fúlt hvernig við mætum til leiks í þennan leik þar sem allt var undir. Það var margt sem fór úrskeiðis og sem dæmi var þriggja stiga nýtingin mjög léleg og við töpum 17 boltum í fyrri hálfleik,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, svekktur. 

„Það gefur augaleið að sú skotnýting sem var uppi á teningnum hjá okkur í þessum leik og sá fjöldi tapaðra bolta skilar ekki góðri niðurstöðu. Í hvert skipti sem við hótuðum endurkomu í seinni hálfleik fengum við stór skot í bakið og því fór sem fór,“ sagði Hörður Axel þar auki. 

Hörður Axel segir óljóst hvað framtíðin beri í skauti sér hjá honum í körfuboltanum: „Það á bara eftir að koma í ljós hvort ég haldi áfram með liðið. Ég var bara með hugann við það að tryggja okkur oddaleik á þriðjudaginn og er ekki kominn lengra en það. Ég mun setjast niður með stjórninni á næstunni og fræða framaldið,“ sagði Hörður Axel um framtið sína. 

Hörður Axel Vilhjálmsson var vitanlega sár og svekktur að leik loknum. Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Það var vendipunktur í þessum leik þegar Keishana Washington var studd meidd af velli. Keflavík var komið í bratta brekku á þeim tíma sem Keishana varð fyrir meiðslum en það var alveg ljóst að það yrði afar erfitt fyrir liðið að klífa fjallið þegar þessi blóðtaka varð. 

Stjörnur og skúrkar

Krystal-Jade Freeman var stigahæst hjá Haukum með 24 stig og Sigrún Björg Ólafsdóttir og Amandine Justine Toi komu næstar með 16 stig hvor. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skilaði 12 stigum á tölfuna og mataði samherja sína með átta stoðsendingum. 

Sara Rún Hinriksdóttir tók við lyklunum af sóknarleik Keflavíkur eftir að Keishana Washington naut ekki við lengur. Sara Rún gerði sitt og var atkvæðamest hjá Keflavíkurliðinu með 26 stig. Aðrar náðu ekki að fylgja hennar fordæmi. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Sigmundur Már Herbertsson, Jóhannes Páll Friðriksson og Jón Þór Eyþórsson voru lítið sem ekkert í sviðsljósinu og það er alltaf góðs viti. Þeir félagar fá sjö í einkunn fyrir prýðilega unninn störf. 

Stemming og umgjörð

Góður andi á Sunnubrautinni í kvöld og fínasti stuðningur í stúkunni sem bæði lið fengu. Skemmtileg körfuboltakvöld suður með sjó og Haukar fara léttir í lundu aftur í fjörðinn fagra. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira