Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason og Þorkell Sigurlaugsson skrifa 1. maí 2026 09:47 Birkir Ingibjartsson, sem skipar 8. sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, lýsir þeirri skoðun sinni í grein hér á Vísi í gær Þau sem hafna framförum - Vísir að þeir sem ekki styðja Borgarlínuverkefnið séu þar með að hafna framförum. Þetta eru stór orð sem enginn fótur er fyrir og því nauðsynlegt að svara þeim strax. Af því að verið er að hnýta í Sjálfstæðisflokkinn má hefna að hann hefur lagt áherslu á endurskoðun Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sérstaklega hvað varðar Reykjavik. Þetta var m.a. gert með einróma samþykkt á Reykjavíkurþingi flokksins 22. nóvember s.l. einmitt til að stuðla að framförum. Bæta almenningssamgöngur hraðar, betur og með lægri kostnaði fyrir allra hagaðila; - almenning, atvinnufyrirtæki, sveitarfélög og ríkissjóð. Borgarlínan er verulega óhagkvæm Rannsókn á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE) og samtakanna Samgöngur fyrir alla (SFA) sem við erum báðir aðilar að, leiðir í ljós að arðsemi Borgarlínunnar er verulega neikvæð. Ný skýrsla: Valkostir við borgarlínu - Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál Núvirðið er neikvætt um 210 milljarða króna. Skýringin er tvíþætt. Í fyrsta lagi er stofnkostnaður gífurlega hár, um 130 milljarðar á verðlagi 2024. Í öðru lagi er ábati af framkvæmdinni neikvæður, einkum vegna hins mikla kostnaðar við umferðartafir sem Borgarlínan veldur vegna fækkunar akreina fyrir almenna umferð. Í skýrslunni er bent á valkost sem kallast Hraðvagnakerfið. Sá valkostur er um 4 x ódýrari en Borgarlínan og hefur nánast sama þjónustustig. Munurinn er fólginn í því að í stað 40 km af rándýrum akbrautum Borgarlínunnar (ýmist miðjusettar eða sérbrautir til hliðar við götu fyrir almenna umferð) er Hraðvagnakerfið með hefðbundnar forgangsakreinar hægra megin í götuþversniði þar sem eru langar biðraðir bíla á álagstíma. Gott dæmi um slíka framkvæmd er forgangsakrein sem nýlega var gerð á Kringlumýrarbraut frá Háaleitisbraut að Miklubraut. Líklega duga um 10 km af slíkum forgangsakreinum til viðbótar við þær sem fyrir eru. Núvirði Hraðvagnakerfisins er jákvætt, um 20 milljarðar, og arðsemi um 6 %. Gert er ráð fyrir að ferðatíðni Hraðvagnakerfisins sé sú sama og í valkosti með Borgarlínukerfinu. Góð ferðatíðni skiptir höfuðmáli og telst því Hraðvagnakerfið vera hágæða almenningssamgöngur. Einn þátt til viðbótar má nefna og það eru umferðartafir sem aukast sífellt frá ári til árs og valda óbærilegum samgöngutöfum og kostnaði upp á hátt í 100 milljarða á ári. Framkvæmdirnar sjálfar valda umferðaröngþveiti. Þetta allt mun að sjálfsögðu dæma Borgarlínuna úr leik í núverandi mynd eftir nokkur ár. Jarrett Walker Við teljum nauðsynlegt að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir nálægt 8 árum síðan lýsti annar okkar (Þórarinn) fyrst þeirri skoðun sinni að SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) hefði betur farið að ráðum Jarrett Walker um að byrja á því að fækka strætóleiðum og leggja áherslu á aukna ferðatíðni. SSH hafði frumkvæði að því að fá Jarrett Walker til landsins til aðstoðar við skipulag Borgarlínu. Hann hefur komið að skipulagi fjölda almenningssamgöngukerfa víðsvegar í heiminum. Erindi sem hann flutti árið 2015, markaði upphaf skipulags Borgarlínunnar og má finna á heimasíðu Borgarlínunnar Erindi Jarrett Walker frá árinu 2015. Abundant Access: Planning Public Transport that Builds Freedom, Prosperity and Sustainability. — Borgarlínan Í erindinu kemur fram sú skoðun hans að fyrsta skrefið í endurbótum á strætókerfi sé að auka ferðatíðni á stofnleiðum. Góð ferðatíðni sé lykilatriði í að bæta aðgengi með almenningssamgöngum. Hann líkti bættu aðgengi við mat. Að hans dómi skiptir litlu máli hver sé tæknileg útfærsla innviða fyrir stofnleiðir, t.d. hvort um sé að ræða hraðvagnakerfi (Bus Rapid Transit, BRT) eða ekki. Hann líkti tæknilegri útfærslu innviðanna við umbúðir (e. wrapper) utan um matinn, sbr. þetta skjáskot úr erindi hans. MYND 1Aðsend Ef einblínt er svo mikið á tæknilega útfærslu að það leiði til þess að hagkvæmasta strætókerfið verði ekki fyrir valinu, þá er verið að borða umbúðirnar og fleygja matnum. Þegar reynslan af aukinni ferðatíðni liggur fyrir, þá er hægt að taka ákvörðun um hvort tekið verði upp BRT eða eitthvað svipað kerfi síðar. Að okkar dómi hefði verið affarasælla að fara betur að ráðum Jarretts Walker. Höfundar eru annars vegar samgönguverkfræðingur og hins vegar viðskiptafræðingur og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Samgöngur Samgönguáætlun Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þórarinn Hjaltason Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun