Handbolti

Guð­jóni Val líkt við ís­lenskt eld­fjall eftir eldræðu á blaða­manna­fundi

Aron Guðmundsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/Anton Brink

Guðjón Valur Sigurðs­son, þjálfari Gum­mers­bach, gagn­rýndi leik­menn sína á blaða­manna­fundi eftir jafn­tefli gegn Göppin­gen í þýsku úr­vals­deildinni í hand­bolta í gær. 

Lærisveinar Guðjóns Vals komu sér í afar slæma stöðu í umræddum leik og voru 21-13 undir þegar 25 mínútur voru eftir af leiknum.  Liðinu tókst þó að vinna sig aftur inn í leikinn og skora jöfnunarmark fjórum sekúndum áður en leiktíminn rann út. Lokatölur 29-29.

Gummersbach hafði frá því í desember átt frábæru gengi að fagna en í undanförnum tveimur leikjum hefur uppskeran aðeins verið eitt stig. Liðið er engu að síður í 4. sæti, með 44 stig úr 30 leikjum en hefur ekki efni á því að slökkva á sér eins og gerðist í gær. 

Endurkoma liðsins í gær nægði leikmönnum Guðjóns Vals ekki til þess að sleppa við eldræðu frá honum. Eftir hamingjuóskir frá kollega sínum, þjálfara Göppingen, tók Guðjón Valur til máls á blaðamannafundinum eftir leik:

„Takk fyrir hamingjuóskirnar með þetta algjörlega óverðskuldaða stig okkar. Göppingen var miklu betra liðið í dag,“ sagði Guðjón Valur sem var kominn í ákveðinn ham og líkir blaðamaður þýska miðilsins Bild eldræðu hans sem á eftir fylgdi við eldræðu Giovani Trappatoni árið 1998. 

Þá, sem þjálfari Bayern Munchen, gagnrýndi Trappatoni leikmenn sína harðlega. Sá blaðamannafundur löngu orðinn goðsagnakenndur og sjá má innslag sem var gert um hann hér: 

Guðjóni Val var líkt við íslenskt eldfjall sem spúir glóandi hrauni út úr sér þegar að hann gagnrýndi spilamennsku sinna manna sleitulaust í langan tíma.

„Mér er alveg sama hversu marka leiki við höfum unnið til þessa. Það er alltaf frammistaðan í þeim leik sem framundan er og stendur yfir sem skiptir máli,“ sagði Guðjón en brot af blaðamannafundinum má sjá hér fyrir neðan: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×