Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Freyja Þórisdóttir skrifar 1. maí 2026 17:01 Kötturinn Diego er mörgum borgarbúum kunnugur en hann heldur sig mest í Skeifunni. Facebook/Spottaði Diegó Einn allra frægasti köttur landsins, Diego, gerði sér ferð í Skeifuna í dag, líkt og hann gerir langflesta daga. Í dag, sem og aðra rauða daga, er opnunartími sumra verslana hins vegar breyttur og virðist höfðinginn ekki alveg nógu sáttur með tiltækið. Hann virtist á mynd sem birt var á Facebook í dag hvorki skilja upp né niður í því að rennihurðirnar á verslun A4 hreyfðust ekki fet. Diego hefur lent í ýmsum hremmingum og má sem dæmi nefna þegar hann var tekinn ófrjálsri hendi í Skeifunni í lok nóvember árið 2024. Hann hefur einnig orðið fyrir bíl en braggaðist vel eftir tvær aðgerðir og hefur náð sér á strik síðan þá. Í dag sást til hans þar sem hann sat og beið eftir því að opnað væri fyrir sér í verslun A4 í Skeifunni en hann heldur sig þar reglulega og stendur að sögn starfsmanna vaktina oft með þeim. Ummæli við færsluna sem birt var í dag inni á Facebook-hópnum Spottaði Diegó hljóða á þennan veg: hann fær vonandi borgað fyrir útkall fyrst að það gleymdist að segja honum að það væri lokað í dag Hann á að hafa rafrænan aðgang þegar honum hentar Hann skilur það alveg, hann er bara að athuga hvort það blási nokkuð inn þarna þar sem hurðarnar falla saman Diego var til umfjöllunar í fréttum Stöðvar 2 árið 2022 þar sem fram kom að fólk væri að gera sér sérstaka ferð í Skeifuna til að berja hann augum. Kötturinn Diegó Reykjavík Verkalýðsdagurinn Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Sjá meira
Diego hefur lent í ýmsum hremmingum og má sem dæmi nefna þegar hann var tekinn ófrjálsri hendi í Skeifunni í lok nóvember árið 2024. Hann hefur einnig orðið fyrir bíl en braggaðist vel eftir tvær aðgerðir og hefur náð sér á strik síðan þá. Í dag sást til hans þar sem hann sat og beið eftir því að opnað væri fyrir sér í verslun A4 í Skeifunni en hann heldur sig þar reglulega og stendur að sögn starfsmanna vaktina oft með þeim. Ummæli við færsluna sem birt var í dag inni á Facebook-hópnum Spottaði Diegó hljóða á þennan veg: hann fær vonandi borgað fyrir útkall fyrst að það gleymdist að segja honum að það væri lokað í dag Hann á að hafa rafrænan aðgang þegar honum hentar Hann skilur það alveg, hann er bara að athuga hvort það blási nokkuð inn þarna þar sem hurðarnar falla saman Diego var til umfjöllunar í fréttum Stöðvar 2 árið 2022 þar sem fram kom að fólk væri að gera sér sérstaka ferð í Skeifuna til að berja hann augum.
hann fær vonandi borgað fyrir útkall fyrst að það gleymdist að segja honum að það væri lokað í dag Hann á að hafa rafrænan aðgang þegar honum hentar Hann skilur það alveg, hann er bara að athuga hvort það blási nokkuð inn þarna þar sem hurðarnar falla saman
Kötturinn Diegó Reykjavík Verkalýðsdagurinn Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Sjá meira