Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 09:30 KA-menn fagna marki sigurmarki Neil McGowan gegn Þór árið 2002. Skjáskot Þór og KA mætast í fyrsta sinn í 22 ár í efstu deild síðar í dag. Uppselt varð á leikinn á tveimur klukkustundum og Þórsarar unnið hörðum höndum við að bæta við stæðum til að fleiri komist að. KA vann báða leiki liðanna í Símadeildinni sálugu árið 2002.
Þór og KA voru síðast í efstu deild árið 2002. Það ár mættust þau í þriðju og tólftu umferð og báðum leikjum lauk með 1-0 sigri KA-manna. Þórsarar höfðu byrjað mótið vel undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar. Þeir unnu 1-0 sigur á Íslandsmeisturum ÍA í fyrstu umferð og gerðu svo 4-4 jafntefli við FH þökk sé þrennu Jóhanns Þórhallssonar áður en kom að Norðanslagnum í maí 2002. KA-menn höfðu hins vegar betur þar, 1-0, þökk sé marki Ásgeirs Más Ásgeirssonar sem fór af varnarveggnum og í netið. Klippa: KA 1-0 Þór (2002) KA vann þar fyrsta sigur sinn það sumarið og komust á fínasta skrið. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, var þjálfari liðsins og stýrði því í fjórða sæti deildarinnar og í undanúrslit bikarsins þar sem KA féll úr leik fyrir Fylki sem varð bikarmeistari um haustið. Það sama var uppi á teningunum þegar liðin tvö áttust við í tólftu umferð þann 1. ágúst 2002. KA vann 1-0 sigur þökk sé marki eftir fast leikatriði. Neil McGowan stangaði svoleiðis aukaspyrnu Jóhanns Helgasonar í netið. Klippa: Þór 0-1 KA (2002) Þórsarar sátu þá í botnsæti deildarinnar og voru þar allt til loka móts. Þeir luku árinu á 5-0 tapi fyrir KR í Vesturbæ þar sem þyrla flutti Íslandsmeistarabikarinn frá Akranesi í Vesturbæ vegna taps toppliðs Fylkis fyrir ÍA á Skaganum. Í ár er aftur komið að því að Þór og KA eigist við og líkt og árið 2002 hefur Þór byrjað mótið betur en KA. Þeir gulklæddu leita enn fyrsta sigursins í sumar og eru með eitt stig við botninn ásamt FH og ÍBV. Þór hefur aftur á móti unnið tvo og tapað tveimur og er því með sex stig í sjöunda sætinu, jafnt Stjörnunni að stigum. Leikur Þórs og KA hefst klukkan 16:00 í dag og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2 frá klukkan 15:50.
Besta deild karla Þór Akureyri KA Íslenski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira