Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir og Þorsteinn Hjartarson skrifa 2. maí 2026 08:30 Hveragerði á að vera samfélag fyrir alla – líka þegar við eldumst. Margt er mjög vel gert í þjónustu við eldri borgara. Öflugt starf Félags eldri borgara hefur skapað mikilvægan vettvang fyrir samveru, hreyfingu og virkni. Þá er innleiðing samþættrar heimaþjónustu – þar sem heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta vinna saman – skref í rétta átt. En það er ekki nóg. Of margir eldri borgarar búa enn við félagslega einangrun. Þrátt fyrir gott félagsstarf ná úrræðin ekki til allra. Þar þarf sveitarfélagið að stíga fastar inn og taka meiri ábyrgð. Við á S-listanum viljum ná betur til þeirra sem standa utan samfélagsins og tryggja að enginn verði eftir, meðal annars með sterkari tengingu milli félagsstarfs og heimaþjónustu og framlagi frá sjálfboðaliðum. Þá þarf að huga að fjölgun dagdvalarrýma í bænum þegar hlutfall eldra fólks fer vaxandi. Dagdvöl er afar mikilvæg fyrir þá sem búa heima en hafa þörf fyrir stuðning yfir daginn og til að létta undir með ástvinum. Nýtum möguleika velferðartækni Við viljum einnig setja velferðartækni í forgang – án þess þó að hún komi nokkru sinni í stað mannlegra samskipta og innlits heimaþjónustunnar. Með réttri notkun getur tæknin aukið öryggi, bætt þjónustu og styrkt sjálfstæði. Skjáheimsóknir og skynjarar sem greina fallslys eða frávik í daglegri rútínu eru dæmi um lausnir sem þegar eru til staðar hér á landi. Hér í Hveragerði vantar hins vegar skýra stefnu um notkun velferðartækni og fræðslu á því sviði. Með markvissri innleiðingu ætti velferðartæknin að geta nýst öllum þeim sem á þurfa að halda. Græn svæði eru lýðheilsumál Náttúran er einn helsti styrkleiki Hveragerðis. Græn svæði og gönguleiðir eru ekki bara fegurð – þau eru lýðheilsumál. Regluleg útivera bætir bæði líkamlega og andlega heilsu og getur dregið úr félagslegri einangrun. Við viljum tryggja aðgengi fyrir alla með öruggum stígum, bekkjum og góðri aðstöðu sem hvetur til útiveru og samveru. Við á S-listanum ætlum að: ●berjast gegn félagslegri einangrun með markvissum aðgerðum ●hraða innleiðingu velferðartækni ●efla aðgengi að grænum svæðum ●þróa þjónustu í virku samstarfi við notendur og Félag eldri borgara Nálgun S-listans er einföld: við viljum ekki þróa þjónustu fyrir fólk – heldur með fólki. Þrátt fyrir að eldri borgarar í Hveragerði búi við góða þjónustu í dag eiga þeir rétt á enn betri þjónustu á morgun. Greinarhöfundar eru eldri borgarar og frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar