Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar 2. maí 2026 20:00 Það er heldur sérstakt að heyra framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs halda því fram að verkalýðsfélög séu „tímaskekkja“ og þau hefði bara átt að leggja niður um aldamótin. Svona yfirlýsingar eru í besta falli misskilningur eða í versta falli alvarleg forréttindablinda. Gott starf verkalýðshreyfingarinnar er ástæða þess að við búum við þau réttindi sem mörg taka sem sjálfsögðum hlut í dag: stytting vinnuvikunnar, orlof, veikindarétt, lágmarkslaun og öryggi á vinnustað. Ekkert af þessu kom af sjálfu sér, þetta eru áunnin réttindi sem fólk barðist fyrir. Að halda því fram að þessi barátta sé skyndilega orðin óþörf er ekki aðeins rangt heldur beinlínis hættulegt. Því veruleikinn er sá að valdaójafnvægið milli launafólks og atvinnurekenda hefur ekki horfið, það birtist bara með öðrum hætti en áður. Í heimi alþjóðavæðingar, gigg-hagkerfis og aukinnar samþjöppunar auðs hefur þörfin fyrir skipulagt mótvægi líklega aldrei verið meiri.Og að bera saman kjör fólks í Sviss og Portúgal er líka varhugavert og yfirborðskennt, lífskjör ráðast af miklu fleiri þáttum en styrk verkalýðsfélaga eins og framleiðni, efnahagsstefnu, skattkerfi og menntun. Að draga þá ályktun að sterk verkalýðsfélög leiði til verri lífskjara er einföldun sem stenst hvorki hagfræðilega né félagsfræðilega skoðun og er villandi. En verkalýðsfélögin eru ekki gallalaus, þau þurfa að þróast, laga sig að nýjum tímum og taka þátt í uppbyggilegri umræðu um framtíð vinnumarkaðarins. En lausnin er ekki að leggja þau niður heldur að efla þau og endurnýja. Spurningin sem við ættum að spyrja okkur er ekki hvort verkalýðsfélög eigi rétt á sér, heldur hvaða samfélag við viljum byggja. Viljum við samfélag þar sem einstaklingar standa einir gagnvart markaðsöflum eða samfélag þar sem öll hafa rödd og raunverulegt samningsafl? Verkalýðsfélög eru ekki tímaskekkja. Þau eru ein af grunnstoðum lýðræðislegs samfélags. Og ef einhverjum finnst þau óþörf í dag, þá segir það líklega meira um stöðu viðkomandi en stöðu vinnandi fólks.Höfundur situr í stjórn Visku stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Það er heldur sérstakt að heyra framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs halda því fram að verkalýðsfélög séu „tímaskekkja“ og þau hefði bara átt að leggja niður um aldamótin. Svona yfirlýsingar eru í besta falli misskilningur eða í versta falli alvarleg forréttindablinda. Gott starf verkalýðshreyfingarinnar er ástæða þess að við búum við þau réttindi sem mörg taka sem sjálfsögðum hlut í dag: stytting vinnuvikunnar, orlof, veikindarétt, lágmarkslaun og öryggi á vinnustað. Ekkert af þessu kom af sjálfu sér, þetta eru áunnin réttindi sem fólk barðist fyrir. Að halda því fram að þessi barátta sé skyndilega orðin óþörf er ekki aðeins rangt heldur beinlínis hættulegt. Því veruleikinn er sá að valdaójafnvægið milli launafólks og atvinnurekenda hefur ekki horfið, það birtist bara með öðrum hætti en áður. Í heimi alþjóðavæðingar, gigg-hagkerfis og aukinnar samþjöppunar auðs hefur þörfin fyrir skipulagt mótvægi líklega aldrei verið meiri.Og að bera saman kjör fólks í Sviss og Portúgal er líka varhugavert og yfirborðskennt, lífskjör ráðast af miklu fleiri þáttum en styrk verkalýðsfélaga eins og framleiðni, efnahagsstefnu, skattkerfi og menntun. Að draga þá ályktun að sterk verkalýðsfélög leiði til verri lífskjara er einföldun sem stenst hvorki hagfræðilega né félagsfræðilega skoðun og er villandi. En verkalýðsfélögin eru ekki gallalaus, þau þurfa að þróast, laga sig að nýjum tímum og taka þátt í uppbyggilegri umræðu um framtíð vinnumarkaðarins. En lausnin er ekki að leggja þau niður heldur að efla þau og endurnýja. Spurningin sem við ættum að spyrja okkur er ekki hvort verkalýðsfélög eigi rétt á sér, heldur hvaða samfélag við viljum byggja. Viljum við samfélag þar sem einstaklingar standa einir gagnvart markaðsöflum eða samfélag þar sem öll hafa rödd og raunverulegt samningsafl? Verkalýðsfélög eru ekki tímaskekkja. Þau eru ein af grunnstoðum lýðræðislegs samfélags. Og ef einhverjum finnst þau óþörf í dag, þá segir það líklega meira um stöðu viðkomandi en stöðu vinnandi fólks.Höfundur situr í stjórn Visku stéttarfélags.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun