Ég kýs með leikskólahjartanu Kristín Dýrfjörð skrifar 4. maí 2026 06:31 Í ár ætla ég að kjósa með leikskólahjartanu. Það felur í sér að kjósa fólk sem talar fyrir hönd barna, fyrir hönd starfsfólks leikskóla, fyrir hönd foreldra. Það felur í sér að átta sig á að vandi leikskólans er margþættur. Mig langar að nefna þætti sem brýnt er að laga. Stór undirliggjandi þáttur vandans tel ég vera húsnæðismál leikskóla. Húsnæði sem börnum og starfsfólki er boðið upp á er allt of lítið. Stofan heima hjá mér er 30 fermetrar. Þegar ég held boð er hún smekkfull þegar við sitjum þar settleg 8–10. Í þessa sömu stofu ættu að vera 10 börn og kannski 1–2 starfsmenn, en í raunveruleikanum eru í stofum að þessari stærð 13–14 börn og starfsfólkið þrennt. Í úttekt sem Hörður Svavarsson gerði í mörgum leikskólum kom í ljós að leikrými sem á að vera um 3 m² er í raun vanreiknað og er að jafnaði 2,28 m². Þá á eftir að gera ráð fyrir starfsfólki sem á rétt á 4,8 m² í persónulegu vinnurými. Miðað við að 30 fermetra stofuna mína, á starfsfólkið því rétt á 14,4 fermetrum en börnin afganginn. Í raun er því reiknað að þessi 13–14 börn hafi rúmlega einn fermetra hvert. Það sér hver maður að þetta er óboðlegt og í raun grunnur að mörgum öðrum vandamálum leikskólans. Hávaði og starfsfólk Það verður mikill hávaði þegar kannski 17–18 sálir eru í svona litlu rými. Það býður upp á árekstra. Í allflestum leikskólum er gert ráð fyrir að leikrými barna sé líka svefn- og matarrými þeirra. Hugtakið loftskipti var ekki hluti af hönnun húsnæðis fyrr en nýlega. Það merkir að víða er erfitt að tryggja fólki gott loft. Raki úr blautum og rökum útifatnaði og andadrætti hefur áhrif á heilbrigði húsnæðis. Það verður oft pestabæli. Það er eitt dásamlegasta starf í heimi að vinna í leikskóla þar sem vel er búið að börnum og starfsfólki. Á sama hátt getur það verið afar þreytandi og slítandi að vinna við óboðlegar aðstæður. Á slíkum stöðum er líkur á veikindum meiri, hávaði er eilíft vandamál sem hefur sýnt sig að getur stuðlað að kulnun. Það er auðvelt að segja að stjórnun sé um að kenna að hærra hlutfall starfsfólks verður frekar veikt í leikskólum en á öðrum stofnunum sveitarfélaga. En þegar litið er til vinnuaðstæðna er reiknisdæmið í raun auðvelt. Áhrif hávaða á börnin Það er fagleg áskorun að búa til umhverfi þar sem börn eru í fyrsta sæti. Þetta þrönga húsnæði hefur ekki bara áhrif á starfsfólkið og stuðlar að óstöðugleika og veikindum, það hefur líka margvísleg áhrif á börn. Börn þurfa gott hljóðumhverfi til að tala saman, til að syngja og hlusta á sögur og bara vera til. Umhverfi sem markast af hávaða styður ekki við málþroska barna, það styður ekki einbeitingu þeirra og ígrundun. Umhverfi sem er pestabæli þar sem kvef og nefrennsli eru staðall er ekki gott fyrir börn. Þið sem eruð fullorðin, hugsið um að þurfa t.d. að mæta á fundi full af kvefi. Allt sem þið heyrið er eins og þið séuð með bómull í eyrunum, með þrýsting upp í haus. Hugsið til barnanna ykkar sem mæta dag eftir dag og eru kannski í þannig ástandi. Það þarf að fækka börnum á deildum og auðvitað starfsfólki samhliða. Það bætir nefnilega ekki ástandið sem ég er að tala um að fjölga fullorðnum á deildum. Brotthvarf og fjarvera Tölur um fjarveru og brotthvarf úr starfi hafa löngum sýnt að leikskólakennarar eru meðal stöðugasta starfsfólks leikskólanna. En samtímis hafa tölur sýnt að kulnun og langtímaveikindi hafa aukist í stéttinni. Leikskólinn í dag er ekki sama stofnun og ég hóf störf í kosningavorið 1978. Á flestum stöðum er starfið metnaðarfullt og leitt af leikskólakennurum sem hafa fagþekkingu, metnað og vilja til að börn fái að vaxa og dafna við bestu mögulegu aðstæður. Eitt af því sem verður að setja í forgang strax eftir kosningar að laga eru húsnæðismál leikskóla. Grunnurinn er að fjölga fermetrum. Höfundur er Reykvíkingur, leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri og núverandi háskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun