Að brjóta nýjar leiðir Ragnar Sverrisson skrifar 5. maí 2026 07:31 Við sem vorum svo heppin að fæðast í Ránargötunni á Akureyri á síðustu öld með hjálp ljósmæðra héldum lengi að þær hefðu komið með okkur í töskunni sinni góðu. Loks rann upp fyrir okkur að þessi kenning var byggð á misskilningi og við frædd um það sem raunverulega gerðist þar sem mamma okkar kom verulega við sögu. Hún þurfti nefnilega að burðast með okkur í níu mánuði en sinna um leið öllum sínum verkum frá morgni til kvölds. Smátt og smátt týndumst við átta systkinin í heiminn og fjörið í númer 16 var alls ráðandi. Á sama hátt hafa margir haldið að ýmislegt í bænum okkar góða hafi orðið til næstum eins auðveldlega og að koma úr tösku ljósmæðranna. Í því sambandi má nefna, að lengi vel var ekki hægt að komast norður úr innbænum gamla nema brölta fyrst upp á brekkuna og þræða sig þaðan niður á Eyri. Svo datt einhverjum snillingi í hug að gera veg með sjónum, undir snarbröttum hlíðunum sem var töluvert afrek í þá daga. Þvílík bjartsýni: Að byggja veg úti í sjónum. Menn gerðu þetta samt með hökum og skóflum og úr varð vegurinn fyrir neðan Samkomuhúsið eins og við eldgamlir Akureyringar þekkjum. Þá myndaðist miðbærinn okkar góði og Oddeyrin dafnaði sem aldrei fyrr. Talsvert síðar kom Drottningarbrautin til sögunnar og nú eru greiðar leiðir um allt en eftir stendur að þessi braut er eini vegurinn fyrir þungaflutninga að austan og austur sem hlýtur að þurfa að breyta því ekkert bæjarfélag vill slíka umferð í gegnum miðbæ sinn þar sem mannlíf verður að fá að þrífast í friði. Sjáum til dæmis Hafnarfjörð sem beindi slíkri þungaumferð fyrir ofan bæinn eins og Samfylkingin leggur til að gert verði hér þó það taki nokkur ár og kosti sitt. En svona er lífið; hvort heldur verið er að tala um hvernig börnin koma í heiminn eða samgöngur þróuðust hér í bænum okkar dugar ekki að halda dauðahaldi í kenningar sem búið er að sýna fram á að ekki standast þegar betur er að gáð. Þá gerist það gjarnan að fram koma úrlausnir sem hæfa samtímanum og allt fellur í ljúfa löð. Tökum annað dæmi: Var ekki deilt um kirkjuna okkar þarna á brekkubrúninni áður en hún reis? Jú, ekki vantaði það. Þegar ákveðið var að hún stæði þar sem hún nú er með anddyri sitt í austur var það mjög umdeilt og jafnvel talin frágangssök að hafa hana þannig því allar kirkjur ættu að snúa á hinn veginn; rétt eins og sú gamla í Fjörunni gerði. Annars væri hætta á að almættið færi húsavillt! Sem betur fer var kirkjan byggð með anddyrið í austur eins og við þekkjum og allir ánægðir með það. Ein myndarlegasta bygging landsins og sannkölluð bæjarprýði. Það væri þokkalegt ef hún hefði snúið afturendanum í þá sem standa á Kaupfélagstorginu, bara vegna þess að sú staða á kirkjuhúsi hefði verið í samræmi við forna hefð. Þá má ekki gleyma þegar stjórn KEA ákvað bara si svona á sínum tíma að leggja niður allar verslanir kaupfélagsins. Ekki þótti ástæða til að hafa samráð við félagsmenn og spyrja þá hvort þeir vildu losna við búðirnar sínar í einu vetfangi. Þrátt fyrir mikið tal allt frá stofnun kaupfélagsins um gildi samvinnunnar, umræðu og félagslegrar nálgunar virtist allt slíkt gleymt og grafið þegar þarna var komið; bara tilkynnt ákvörðun yfirvaldsins og vona það besta. Ekkert lengur til sem hét félagsleg samstaða, hvað þá að hlusta á hinn óbreytta félagsmann í KEA enda hefði hann sjálfsagt ekkert vit á rekstri fyrirtækja. Þarna urðum meira að segja við óbreyttir kaupmenn í plássinu alveg undrandi á þessum keppinaut okkar til fjölda ára. En eins og við í Ránargötunni urðum hissa á því hvernig börnin komu raunverulega í heiminn löguðum við okkur strax að nýjum sannleik. Nú dafnar verslun og þjónusta sem aldrei fyrr í okkar góða bæ, kristnihald í blóma þrátt fyrir að kirkjan snúi öfugt og börnin koma í heiminn upp á sjúkrahúsi enda þótt ljósmæðurnar séu fyrir löngu búnar að setja töskurnar sínar upp á hillur! Við þessar aðstæður verður gaman að kjósa nýtt og ferskt fólk í bæjarstjórn þar sem breytingar verða skoðaðar af jákvæðni en ekki hræðslu. Sagan kennir okkur að það hafi oft leitt til framfara fyrir bæinn okkar. Höfundur skipar 22. sæti S-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Akureyri Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar