Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. maí 2026 20:31 Hjalti Óskarsson er hagfræðingur hjá Landsbankanum. Landsbankinn Búist er við holskeflu ferðamanna í ágúst vegna sólmyrkvans og það á versta mögulega tíma, að mati greiningardeildar Landsbankans. Hagfræðingur bankans segir verðbólguspárnar þegar á tæpasta vaði og að sólmyrkvinn gæti orðið þúfan sem veltir hlassinu.
Hjalti Óskarsson hagfræðingur Landsbankans fór yfir málin í kvöldfréttum. Eðlilega fylgir viðburði sem almyrkva á sólu mikill verðþrýstingur. Það gæti því vel verið gangur himintunglanna sem hleypir öllu upp í loft. Forsenduákvæði gildandi kjarasamninga virkjast hjaðni verðbólga ekki niður fyrir 4,7 prósenta mörkin í september. Það gæfi stéttarfélögunum færi á að slíta samningunum og hefja nýja samningalotu. Verkalýðsfélögin sættu sig við hóflegar launahækkanir gegn heitum um að haldið yrði aftur af verðhækkunum sem þau telja flest ekki hafa gengið eftir. Ekkert má út af bregða Landsbankinn gerir ráð fyrir því í spá sinni að verðbólga verði upp á 4,8 prósent í september. Því má alls ekkert út af bregða. „Það er í sjálfu sér jákvætt að hingað komi fullt af áhugasömum ferðamönnum til að sjá þennan sólmyrkva. Þau þurfa að kaupa ýmsa þjónustu, flugmiða, gistingu og slíkt. Það hefur bæði í för með sér jákvæðan efnahagslegan ábáta fyrir okkur en þegar það er þannig að það eru færri sem komast að en vilja hefur það áhrif á verð í ferðaþjónustutengdri þjónustu. Við gerum ráð fyrir því að sjá það í ágústmælingunni að einhverju leyti,“ segir Hjalti. „Verðbólguspár fram í tímann eru á þessu bili 4,7 prósent eða yfir. Okkar spá er upp á 4,8 prósent. Þó að það sé ekki þannig að sólmyrkvinn sé stóra málið í verðbólguþróuninni til næstu mánaða. Olíuverðið og þróun í málum í Miðausturlöndum hefur miklu meira að segja fyrir verðbólguna en þegar verðbólgan er svona nálægt þessu forsenduákvæði þá má bara svo litlu muna. Ef áhrifin af sólmyrkvanum verða til þess að þau hækki aðeins getur það dugað til þess að forsenduákvæðið virkist.“ Tunglið hittir illa á Er eitthvað sem stjórnvöld gætu gert til að milda áhrifin? „Í sjálfu sér ekki. Undir venjulegum kringumstæðum væri svona skot ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Það er sagt í gríni að tímasetningin á sólmyrkvanum sé óheppileg en það er kannski frekar tímasetningin á þessu forsenduákvæði sem er óheppileg,“ segir Hjalti Óskarsson hagfræðingur Landsbankans.
Verðlag Kjaramál Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vinnumarkaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira