Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir skrifar 4. maí 2026 22:02 Það er eitthvað að hreyfast í umræðunni um arkitektúr og skipulag. Fleiri hafa skoðun, segja hana upphátt og vilja skilja. Spurningin er hvort við höfum náð einhvers konar botni og séum loksins komin á þann stað að geta lyft umræðunni upp á hærra plan. Er þetta óskhyggja í mér? Ég er ekki arkitekt, en hef unnið með arkitektúr mest alla mína starfsævi, m.a. með fókus á miðlun. Það hefur kennt mér að góður arkitektúr verður ekki bara til í hönnuninni sjálfri heldur líka í samtalinu í kringum hana. Ef við tölum ekki um arkitektúrinn, útskýrum hann og gerum hann sýnilegan, þá fær hann einfaldlega ekki það vægi í samfélaginu sem hann á skilið. Fyrir rúmum tuttugu árum var ráðist í stórt og markvisst miðlunarátak í Kaupmannahöfn, Copenhagen X, sem ég starfaði sjálf við sem hluti af Danska Arkitektúr Centrinu. Verkefnið stóð í tíu ár og naut verulegs fjárhagslegs stuðnings frá Kaupmannahafnarborg, Frederiksberg Kommune og sjóðnum Realdania. Samtals yfir einn milljarð íslenskra króna. Þetta var raunveruleg fjárfesting í því að lyfta umræðunni um arkitektúr og borgarþróun upp á nýtt plan í borginni; markviss uppbygging á þekkingu, samtali og sýnileika sem hafði áhrif langt út fyrir fagið sjálft. Ástæðan var ekki síst sú að verkefni eins og Kalvebod Brygge í Kaupmannahöfn hafði risið og nær allir voru sammála um að þar, í miðri borg með útsýni yfir höfnina, hefðu orðið skipulagsmistök. Svæðið einkennist af stórum, einhæfum skrifstofubyggingum, ómanneskjulegum skala, líflausum jarðhæðum og veikum tengslum við umhverfið. Fyrsti fasi í nýja hverfinu Ørestad var svo annað dæmi sem alls ekki þótti hafa heppnast vel. En umræðan stoppaði ekki við gagnrýnina. Fjárfestingin í miðluninni fór í að byggja upp þekkingu og samtal, bæði hjá fagfólki og almenningi. Hvernig búum við til frábæra borg? Með ótal viðburðum, sýningum, skoðunarferðum, greinum, fyrirlestrum og umræðum varð virði arkitektúrsins sýnilegra öllum. Á þessum árum voru stofur eins og COBE, Effekt, JAJA, Lendager, Third Nature og BIG að stíga sín fyrstu skref. Margar þeirra hafa síðar náð langt alþjóðlega. Stofurnar nutu góðs af aukinni athygli á arkitektúr sem t.a.m. skilaði sér í meiri metnaði verkkaupa og fleiri hugmyndasamkeppnum. Þegar umræðan þroskast hækka kröfurnar og gæðin verða meiri. Spurningin er nú, hvort við hér á Íslandi séum búin að finna okkar sameiginlega botn sem við getum spyrnt okkur frá. Höfum við eignast okkar eigin Kalvebod Brygge eða Ørestad? Ekki eitt tiltekið verkefni endilega, heldur sameiginlega reynslu af því að við getum og eigum að gera betur. Að gæði í skipulagi og arkitektúr séu ekki smekksatriði fárra, heldur samfélagslegt hagsmunamál. Við eigum ekki sjóð eins og Realdania sem setur milljarða í miðlun. En við eigum samfélag sem getur sett kröfur. Arkitektúr er nefnilega ekki bara á ábyrgð arkitekta. Arkitektúr mótast af ákvörðunum ríkis, sveitarfélaga, fjárfestinga, lagaumhverfis og ekki síst væntingum okkar sem notenda. Við sem notendur þurfum t.d. að vera meðvitaðri kaupendur og setja meiri kröfur, því það umhverfi sem við búum og lifum í hefur bein áhrif á lífsgæði okkar og heilsu. Þessi litli pistill er ákall um að allir láti sig arkitektúr varða. Umræðan mótast ekki af sjálfu sér, heldur mótum við hana. Sættum okkur ekki bara við það sem við fáum, heldur gerum kröfur um það sem við viljum. Þannig verður góður arkitektúr til. Höfundur er viðskipta- og þróunarstjóri hjá Basalt Arkitektum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skipulag Arkitektúr Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar