Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Smári Jökull Jónsson skrifar 9. maí 2026 16:42 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink Fjármálaráðherra segist ánægður með hvernig olíufélögin hafa brugðist við tímabundinni heimild í lögum um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Viðbrögð þeirra bendi til að félögin séu meðvituð um sína ábyrgð.
Tímabundin heimild í lögum um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11% tók gildi þann 1. maí síðastliðinn. Gildir heimildin til 31. ágúst og lækkaði verð á eldsneyti umtalsvert þegar lögin tóku gildi, um rúmar tuttugu krónur krónur lítrann á bensíni og á dísel um rúmlega þrjátíu krónur. Fjármálaráðherra segir að ekki sé annað að sjá en lækkunin hafi að fullu skilað sér til neytenda. „Það var eitt frávik en í því tilfelli var það olíufélag sem býr við nokkuð önnur skilyrði heldur en önnur olíufélög þannig að það er ekkert víst að það séu frávík sem ekki eru eðlilegar skýringar,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í samtali við fréttastofu. „Annars virðist þetta hafa skilað sér að fullu og ég er bara mjög ánægður með hvernig olíufélögin hafa nýtt sér þetta til þess að lækka einmitt verð til neytenda sem var markmiðið.“ Viðbrögð olíufélaganna bendi til meðvitundar um ábyrgð Í viðtali við formann Félags íslenskra bifreiðaeigenda fyrr í vikunni kom fram að verð á eldsneyti í Costco hafi ekki lækkað jafn mikið og hann taldi eðlilegt. Hann tók jafnframt fram að mismunandi innkaupastefnur fyrirtækjanna gætu verið ástæðan þar á bakvið. Samkeppniseftirlitið mun sinna eftirliti með því að lækkun virðisaukaskatts skili sér í raun til neytenda og verður reglubundin upplýsingaskylda lögð á olíufélögin. „Ég held að svona fyrstu skrefin, og raunar ef ég má segja líka viðbrögð olíufélaganna við breytingunni á olíu- og bensíngjaldi og innleiðingu kílómetragjalds um síðustu áramót, bendi nú til þess að það sé meðvitund um ábyrgðina innan olíufélaganna,“ segir Daði Már. Eftirlitið sé jákvætt sem og að upplýsingar um verð berist til neytenda, allir séu betur settir ef upplýsingarnar séu uppi á borðinu. „Það er ekkert sem bendir til annars en að þetta hafi þau jákvæðu áhrif sem við ætluðumst til.“
Bensín og olía Neytendur Samkeppnismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Verslun Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira