Erlent

Um­sátur í Þýska­landi: Banka­rán varð að gíslatöku

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar sitja um bankann, þar sem ótilgreindur fjöldi ræningja heldur fólki í gíslingu.
Lögregluþjónar sitja um bankann, þar sem ótilgreindur fjöldi ræningja heldur fólki í gíslingu. AP/Thomas Frey

Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun.

Þá er ekki heldur vitað hve margir gíslarnir eru inni í bankanum, samkvæmt frétt Bild.

Lögreglan notast við þyrlur til að vakta bankanna og bæinn og sérsveitarmenn eru sagðir fylgjast með öllum útgöngum úr bankanum.

Íbúar hafa varið hvattir til að halda sig innandyra en lögreglan segist hafa stjórn á aðstæðum og að ógnin gagnvart bæjarbúum sé takmörkuð. Sinzig er um sautján þúsund manna bær nærri Bonn.

DW segir lögregluna annars verjast fregna af stöðunni, þar sem „einhverjir“, væntanleg ræningjarnir, gætu verið að fylgjast með fréttum.

„Við verðum að bíða og sjá hvernig aðstæður þróast,“ hefur miðillinn eftir talsmanni lögreglunnar.

Fréttin verður uppfærð.

Reuters er með beina útsendingu frá vettvangi sem sjá má í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×