Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Freyja Þórisdóttir skrifar 10. maí 2026 08:58 Fyrstu farþegarnir og áhöfnin af MV Hondius, skemmtiferðaskipinu sem er miðpunktur hantaveirufaraldursins, hafa farið frá borði á Tenerife. AP Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir.
Þetta er meðal þess sem breski fjölmiðillinn Sky News hefur tekið saman í vakt sem þau halda úti vegna málsins. Þar segir einnig að yfirvöld á Spáni, með aðstoð annarra þjóða og í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), muni þá ferja þá farþega sem eftir eru af skipinu áður en þeir verða fluttir heim til sín. Farþegar og áhöfn, alls um hundrað og fimmtíu manns, hafa verið skimaðir af spænskum heilbrigðisyfirvöldum til að tryggja að þeir séu áfram einkennalausir og verða þeir næst fluttir í land í litlum bátum. Innsiglaðar rútur munu síðan flytja farþegana á aðalflugvöll spænsku eyjunnar, Teneride Sud, sem er í um 10 mínútna fjarlægð frá höfninni. Að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er ætlunin að fljúga með þá heim í dag, sunnudaginn 10. maí, og á morgun, mánudaginn 11. maí, en að sögn framkvæmdastjóra WHO er gert ráð fyrir tíu heimflutningsflugum í dag, sex fyrir lönd innan ESB og fjögur fyrir lönd utan þess. Engar tafir verða á flugvellinum, þar sem einstaklingarnir munu sleppa vegabréfaeftirliti og fara beint um borð í flugvélarnar. Engin nagdýr um borð Heilbrigðisráðherra Spánar, Javier Padilla, hefur birt færslu á X til að fullvissa íbúa á Tenerife. Þar sagði að við skoðun sérfræðinga hefðu engin nagdýr fundist um borð í skipinu. „Líkurnar á því að nagdýr frá Andesfjöllum, sem lifir í fjalllendi, kæmist um borð og til strandar Kanaríeyja með því að synda eru engar,“ bætti hann við. Fréttaveitan Reuters greinir frá því að spænskir ríkisborgarar munu fara fyrst frá borði og önnur þjóðerni fylgja á eftir í hópum. Um 30 áhafnarmeðlimir verða áfram um borð og sigla til Hollands þar sem skipið verður sótthreinsað. Ýmsir viðbragðsaðilar eru á staðnum, þar á meðal flugvél frá spænska flughernum og lögregluþyrla. Lönd á borð við Belgíu, Frakkland, Þýskaland, Írland, Bandaríkin, Bretland og Holland staðfestu á laugardag að þau hefðu sent flugvélar til að flytja ríkisborgara sína um borð á brott, þótt embættismenn sveitarfélaga á Kanaríeyjum hafi sagt að ekki væru allar flugvélar komnar á sunnudagsmorgun. Farþegar munu ekki yfirgefa skipið fyrr en flugvélin sem þeim hefur verið úthlutað til brottflutnings er komin, sögðu spænsk yfirvöld. Tugir fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Þegar í ljós kom að um tveir tugir manna fóru frá borði á St. Helenu í Suður-Atlantshafi þann 24. apríl var óttast að þeir kynnu að hafa dreift hantaveirunni frekar, sem leiddi til þess að yfirvöld hófu smitrakningu í að minnsta kosti þremur heimsálfum. Tveir argentínskir embættismenn hafa áður sagt að kenning þarlendra stjórnvalda væri sú að hollensk hjón hefðu smitast af veirunni við fuglaskoðun í suðurhluta Argentínu. Kenningin er sú að þau hafi síðan borið smitið með sér um borð í skipið. Embættismennirnir sögðu að í fuglaskoðunarferðinni hefðu hjónin heimsótt urðunarstað þar sem þau kynnu að hafa komist í snertingu við nagdýr sem báru smitið.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Kanaríeyjar Spánn Holland Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Innlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Fréttir Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fleiri fréttir Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Sjá meira