Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. maí 2026 15:39 Hjólað var vestur eftir Kársnesinu á norðanverðu nesinu og sunnanverðu nesinu. Hóparnir mættust svo við Atlantsolíu, þaðan sem leiðin lá í beinni línu að Barnaskóla Kársness og Kársnesskóla. Finnur Magnússon Föngulegur hópur; 98 barnungir og fullorðnir hjólarar, tvær löggur og hundur, lögðu leið sína fram og aftur eftir Kársnesinu í Kópavogi í morgun. Um var að ræða svokallaðan „hjólastrætó“ í skólann, þar sem börn hjóla saman í skólann í fylgd með fullorðnum. „
Ég er hjólanörd og held ég hafi bara séð þetta inni á Instagram,“ segir skipuleggjandinn Finnur Magnússon um hugmyndina. Hann segir undirtektirnar hafa verið gríðarlega góðar en þetta var fyrsta ferðin í morgun og stefnt á að gera hjólastrætóinn að vikulegum viðburði, hið minnsta. Finnur hjólar sjálfur í vinnuna og drengurinn hans í skólann. „Það er ofsalega mikill hjólakúltúr hérna á Kársnesinu en engir innviðir til að hjóla,“ útskýrir Finnur. Hverfið sé í vexti, vinsælt hjá barnafjölskyldum og margir krakkar úti að hjóla. Hins vegar séu fáir staðir til að hjóla á. Aðstæðurnar kalli þannig á fyrirbæri á borð við hjólastrætó, sem virkar þannig að hópur leggur af stað á byrjunarreit, skipaður börnum með foreldra á undan, í miðju og á eftir. Fleiri bætast svo í hópinn eftir því sem nær dregur skólanum. „Það er algengt í Bandaríkjunum að þetta sé gert einu sinni í viku,“ segir Finnur. Miðað við viðbrögðin telur hann átakið tvímælalaust munu endast en um 30 til 40 foreldrar mættu í morgun og ferðirnar í sjálfu sér aðeins háðar þátttöku þeirra. Finnur hefur gert sér lítið fyrir og sett upp heimasíðuna hjolastraeto.world, þar sem meðal annars má finna upplýsingar um skipulagðar ferðir, kort og reglur, svo sem endurskinsmerkja- og hjálmanotkun. Hann hvetur aðra sem vilja koma á hjólastrætó í sínu hverfi til að setja sig í samband í gegnum síðuna.
Hjólreiðar Kópavogur Skóla- og menntamál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira