Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 19:39 DeAndre Kane bíður nú eftir niðurstöðu aga- og úrskurðanefndar. vísir / guðmundur Kæra frá eftirlitsmanni á leik Tindastóls og Grindavíkur hefur ratað inn á borð aga- og úrskurðanefndar Körfuknattleikssambands Íslands vegna hátterni DeAndre Kane, leikmanns Grindavíkur, eftir leik liðanna í gærkvöld.
Kane komst sem svo oft áður í kast við stuðningsmenn í gærkvöldi. Í miðjum fagnaðarlátum Grindavíkur eftir 83-86 sigur gegn Tindastóli sendi Kane miðjufingurinn upp í stúku. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, sá hvernig Kane hegðaði sér, reiddist og lét hann heyra það. Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls gagnrýndi hegðun Kane sömuleiðis harðlega í viðtali eftir leik. Samkvæmt heimildum Vísis lenti Kane einnig í samstuði við ungan starfsmann í Síkinu þegar leikmaðurinn gekk inn í búningsklefa. Málið hefur verið sent til aga- og úrskurðanefndar KKÍ sem mun halda fund á morgun. Þar gæti Kane verið úrskurðaður í leikbann, fengið sekt eða verið sleppt. Niðurstaða ætti að liggja fyrir síðdegis á morgun. „Ég get ekki farið út í efni kærunnar en það er komin kæra sem verður tekin fyrir á morgun,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í samtali við Vísi. Nefndin mun úrskurða það hvort Kane verði dæmdur í leikbann en hegðun hans í salnum í Síkinu og umræðu um hana úr Körfuboltakvöldi má sjá hér að ofan. Kane á sér langa sögu af leikbönnum Kane var fyrr á tímabilinu úrskurðaður í eins leiks bann fyrir framkomu sína í leik gegn ÍR. Kane missti hausinn þegar hann var rekinn úr húsi og lét meðal annars ruslatunnu finna fyrir því. Vegna þess banns missti Kane af mikilvægum deildarleik gegn Tindastóli. Hann missti líka af leik gegn Tindastóli í átta liða úrslitum árið 2024, en þá fyrir hegðun sína gagnvart dómara í deildarleik gegn Stjörnunni sem hafði farið fram tveimur vikum fyrr. Grindvíkingar horfa því upp á það í þriðja sinn á þremur árum að missa DeAndre Kane mögulega í leikbann vegna slæmrar hegðunar, fyrir mikilvægan leik gegn Tindastóli. Fréttin hefur verið leiðrétt. Upphaflega kom fram í inngangi að kæran hefði borist til KKÍ frá Tindastóli en rétt er að eftirlitsmaður KKÍ kom málinu inn á borð aga- og úrskurðanefndar.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Tindastóll Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Fótbolti Fleiri fréttir Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sjá meira