Atvinnuvegaráðherra taki fram fyrir hendur Hafró Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar 18. maí 2026 08:02 Það kom frétt frá Hafró á dögunum að stofnvísitala þorsks á Íslandsmiðum væri sú lægsta frá 2011. Það þýðir á mannamáli að það er nánast gefið að það verði lækkun á ráðgjöf varðandi hámarksafla þorsks á næstkomandi fiskveiðiári. Lækkunin gæti numið c.a. 4 til 8% og verði innan við 200 þúsund tonn. Ef það verður að veruleika, þá verður árleg ráðgjöf um hámarksafla þorsks búinn að minnka/lækka hátt í hundrað þúsund tonn á 7 ára tímabili. Það er aflaverðmæti upp á tugi milljarða árlega. Það er líka annar vinkill á þessari vitleysu frá Hafró en hann er sá að það er mjög erfitt að veiða aðrar fisktegundir t.d. ýsu eða ufsa án þess að fá töluvert magn af þorski eða mjög hátt hlutfall þorski, þó reynt sé að sækja í ýsu eða ufsa að meiri krafti. Útgerðarmenn, fiskverkendur og samtök sjómanna hljóta að fara berja í borðið og heimta að farið verði ofan í saumana á aðferðarfræði Hafró. Upplifun sjómanna er í engu samræmi við ráðgjöf Hafró þegar kemur að þorskstofnum umhverfis landið. Það fer allt of mikill orka og tími í að forðast að fá þorsk í veiðarfæri og ná hærra hlutfalli af öðrum tegundum, t.d. ýsu og ufsa á móti þorskaflanum. Atvinnuvegaráðherra verður í sumar að taka fram fyrir hendur Hafró og heimila hámarksafla í þorski sem er langt um meira en Hafró mun koma til með að mæla fyrir um í sinni væntanlegu ráðgjöf fyrir næstkomandi fiskveiðiár. Fordæmi eru fyrir slíkum vinnubrögðum hjá nágrönnum okkar á Grænlandi, sem hafa þegar ákveðið að hámarksafli þorsks sé nærri tvöfalt á við ráðgjöf fiskfræðinga við Austur Grænlandi og á Dorhn bankanum, við miðlínu Íslands og Grænlands. Þar eru Grænlendingar ásamt ESB skipum, Færeyingum og Norðmönnum að veiða þorskgöngur frá Íslandsmiðum, sbr. gögnum frá Grænlandi. Hafró hefur fyrir margt löngu síðan misst trúverðugleika sinn þegar kemur að ráðgjöf varðandi veiðar á þorski og nýtingu fiskistofna á Íslandsmiðum. Árangurinn er vægast sagt slakur, margir fiskstofnar eru í rjúkandi rúst eftir áratuga óstjórn Hafró og nægir þar að nefna humarinn, djúpkarfa, rækjustofna og kolategundir svo eitthvað sé nefnt, að ógleymdri þeirri staðreynd að minna er veitt af þorski í dag en þegar völdin voru færð í hendur Hafró fyrir tugum ára. Ef Atvinnuvegaráðherra vantar nýlegt íslenskt fordæmi til að styðja við ákvörðun um að veiða umfram ráðgjöf Hafró og fiskifræðinga er nærtækast að horfa til ákvörðunar ráðherra varðandi djúpkarfa en Hafró lagði til veiðibann/enga kvóta á djúpkarfi en Atvinnuráðherra ákvað á síðasta fiskveiðiári engu að síður að gefa út aflaheimildir, fór þar með gegn ráðgjöf Hafró. Annað fordæmi er kvóti sem Íslensk stjórnvöld gefa út á hverju ári í makríl og eru hreinar umfram aflaheimildir við ráðgjöf fiskifræðinga á alþjóðavísu. Hér eru tvö fordæmi sem Atvinnuvegaráðherra getur horft til þegar kemur að því í sumar, að taka fram fyrir hendurnar á Hafró varðandi ráðgjöfina um heildarafla í þorski fyrir næstkomandi fiskveiðiár. Höfundur er smábátasjómaður og búsettur í Langanesbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar