Sport

Hvaða út­gáfu af Kane fáum við í kvöld?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
DeAndre Kane verður í sviðsljósinu í kvöld eins og svo oft áður.
DeAndre Kane verður í sviðsljósinu í kvöld eins og svo oft áður. vísir/guðmundur

Sauðárkrókur er aðalstaðurinn í kvöld. Leikur fjögur í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Fer bikarinn á loft í Síkinu annað árið í röð?

Stólarnir hafa engan áhuga á því og takist þeim að leggja Grindavík í kvöld þá fáum við oddaleik á fimmtudaginn. Það mun mikið ganga á hjá liðunum í kvöld.

Arsenal er í dauðafæri að svo gott sem tryggja sér titilinn á Englandi er liðið tekur á móti Burnley í kvöld.

KR tapaði sínum fyrstu stigum í Bestu deildinni og Valur var með magnaðan endurkomusigur gegn Blikunum.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×