Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. maí 2026 06:31 Ísak var í fullum rétti þegar hann tók aðgerðir lögreglu upp á símann sinn. Lögregla hafði ekki heimild til að skipa honum að eyða efninu. Ísak Berglindarson Almennum borgurum er heimilt að taka upp myndskeið af aðgerðum lögreglu á almannafæri. Þá hefur lögregla ekki heimild til að skipa einstaklingum að eyða upptökum, líkt og virðist hafa átt sér stað í Keflavík á mánudagsmorgun.
Vísir greindi frá því að maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð og tók atvikið upp á símann sinn, hefði verið neyddur til þess af lögreglu að eyða myndskeiðinu undir hótunum um handtöku. „Hann var alveg svolítið ógnandi, hann hótaði að handtaka mig og svona. Ég ákvað að hlýða honum, ég nennti ekki einhverju svona bulli en ég sé eftir því núna,“ sagði Ísak Berglindarson um umræddan lögreglumann. Lýsti hann því hvernig lögreglumaður hefði tekið símann af honum en skilað honum þegar vitnið benti á að þetta mætti hann ekki gera án úrskurðar. Ísak benti á að til viðbótar við ólögmæti framgöngu lögreglu, hefði myndskeiðið mögulega geta varpað ljósi á það sem átti sér stað þegar eldur kviknaði í manninum sem verið var að hafa afskipti af en áhöld eru uppi um það hvort hann kveikti sjálfur í sér eða hvort rafvopn lögreglu áttu þar þátt. Lögregla sagði í tilkynningu að maðurinn hefði hellt yfir sig bensíni áður en rafvopninu var beitt en víða erlendis er lögreglu bannað að beita slíkum vopnum nálægt eldfimum vökva sökum eldhættu. Ekki sama að taka upp og birta Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur á sviði persónuverndar og upplýsingatækniréttar, segir lögreglu ekki hafa lagaheimildir til þess að banna einstaklingum að taka upp aðgerðir á vettvangi. Upptökur á almannafæri brjóti almennt ekki gegn friðhelgi einkalífsins né persónuvernd og þá séu þær eftir atvikum verndaðar sem partur af tjáningarfrelsinu. „Það er ekkert sem bannar upptökur á almannafæri en það þarf að gera greinarmun á upptöku og svo birtingu og frekari dreifingu,“ segir Lára. „Það er ekki það sama að taka upp og birta eða dreifa áfram. Það geta komið upp sjónarmið varðandi friðhelgi einkalífs einstaklings sem er í annarlegu ástandi og maður getur trúað því að lögregla hafi haft góðan ásetning og talið sig vera að vernda viðkomandi, en stjórnvöld þurfa að starfa innan skýrra lagaheimilda og það er ekki nema efnið hefði farið í frekari dreifingu að það hefðu mögulega komið upp álitamál af þessu tagi,“ segir hún. Það væri hins vegar eftirlitsstjórnvalda eða dómstóla að úrskurða um slík álitamál og þá bendir Lára á að lögreglu hefði verið í lófa lagið að gæta meðalhófs og benda Ísak á að dreifing efnisins gæti mögulega falið í sér lögbrot, í stað þess að skipa honum að eyða myndefninu. Upptökur almennings geta verið mikilvæg sönnunargögn Það hefur sýnt sig vestanhafs, ekki síst í aðgerðum ICE síðustu misseri, að upptökur almennra borgara af aðgerðum yfirvalda geta verið dýrmæt sönnunargögn þegar mál koma upp þar sem lögregla eða önnur yfirvöld eru grunuð um ólögmæta valdbeitingu. Lára segir þetta einnig hafa sannað sig hérlendis, þar sem lögreglumenn hafi verið dæmdir á grundvelli myndupptaka borgara. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, viðurkenndi í samtali við fréttastofu í gærmorgun að lögregla hefði ekki beina lagaheimild til að fyrirskipa eyðingu myndefnis eins og þarna átti sér stað en lögregla hefði verið að hugsa um hagsmuni einstaklingsins sem verið var að hafa afskipti af. Þá fullyrti hún að framganga lögreglu myndi ekki valda neinum „réttarspjöllum“ þar sem lögregla hefði borið búkmyndavélar. Ef marka má Láru og fleiri lögmenn sem fréttastofa hefur rætt við, breytir það því ekki að lögregla virðist þarna hafa gerst brotleg. „Ef lögregla hefur skipað fyrir um að gögn væru tæmd úr síma, þá er ekki bara verið að biðja um það að efni sé ekki birt heldur er verið að tryggja að það verði ekki endurheimt. Mér finnst þetta skipta máli,“ segir Lára. Skýrar lagaheimildir þurfi að liggja til grundvallar aðgerðum lögreglu.
Lögreglumál Lögreglan Rafbyssur Reykjanesbær Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira