Sport

Sýning Pargo í Síkinu mun seint gleymast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var sama hvað Stólarnir reyndu. Þeir gátu ekki stöðvað Pargo.
Það var sama hvað Stólarnir reyndu. Þeir gátu ekki stöðvað Pargo. mynd/sigurður ingi

Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta og það getur liðið þakkað Jeremy Pargo.

Sá fertugi átti einn ótrúlegasta leik í sögu íslensks körfubolta í Síkinu. Hitti nánast úr öllu og endaði með tæplega 50 stig. Ótrúleg frammistaða án DeAndre Kane og Ólafs Ólafssonar.

Besta sætið gerir upp þetta úrslitaeinvígi og spáir aðeins í framhaldið hjá þessum liðum.

Þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson kom mörgum á óvart er hann færði sig um set í Garðabænum. Fór frá Stjörnunni yfir til Álftaness. Stjörnumönnum til lítillar kæti.

Man. City verður að vinna í kvöld til þess að halda lífi í titilvonum sínum á lífi og Spurs getur tryggt sæti sitt í deild þeirra bestu.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×