Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Lovísa Arnardóttir skrifar 24. maí 2026 19:03 Agnes Ósk hvetur fólk til að tilkynna allar tilraunir í gáttina. Aðsend og Vísir/Getty Frá því að ný netgátt fyrir netglæpi var opnuð um miðjan apríl hafa borist til hennar um 250 ábendingar um netbrot og á þriðja tug mála farið í rannsókn, flest hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagstjón þessara glæpa nemur um 91 milljón íslenskra króna. „
Frá því gáttin opnaði, þá hafa 34 netbrotamál borist lögreglu og þar af fóru 22 mál í gegnum gáttina og tólf voru skráð með öðrum leiðum,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi í fjármunadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meirihlutinn sé til rannsóknar á höfuðborgarsvæðinu. Dómsmálaráðherra opnaði fyrir um mánuði síðan nýja netgátt, stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu. „24 þessara mála eru hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og af þeim 24 málum sem komu úr gáttinni voru níu mál skráð með öðrum leiðum. Alls hafa um 240 ábendingar borist í gáttina sem hafa orðið að þessum 34 málum. „Fólk er líka bara að tilkynna okkur um tilraunir. Við viljum fá þær tilkynningar endilega líka af því við viljum geta séð hvernig málin eru að þróast.“ Hægt er að tilkynna nokkrar tegundir netsvika í gáttina: ástarsvik, fjárfestingarsvik, fyrirframgreiðslusvik, kortasvik, vefverslunarsvik og samskiptasvik. Agnes segir að frá því að gáttin var opnuð hafi mest verið tilkynnt um korta- og fyrirframgreiðslusvik, en einnig eitthvað um fjarskipta- og ástarsvik. Fyrirframgreiðslusvik algeng Agnes segir til dæmis fyrirframgreiðslusvik algeng við leigu á íbúðum. „Þú tryggir þér íbúð eða eitthvað slíkt með því að leggja inn á viðkomandi og tryggja þér íbúð og svo er kannski bara jafnvel engin íbúð til staðar.“ Agnes segir gáttina mikilvægan þátt í að efla viðbragðshraða „Það skapast þarna miðlægur vettvangur fyrir lögregluna til þess að greina fljótt hvaða embætti á að taka við hvaða verkefni. Þetta auðveldar síðan lögreglunni að safna upplýsingum með samræmdum hætti. Með þessu getum við til dæmis greint mynstur eða tengsl á milli mála og brugðist eins hratt og við getum við þessu formi skipulagðrar brotastarfsemi.“ Þá segir hún þau einnig hafa aukið færi á að greina mynstur í svikum og hvernig þau þróast. Sem dæmi hafi í vikunni verið sendur úr póstur vegna breytinga á svokölluðum Microsoft-svikum í kjölfar tilkynninga frá fólki um tilraunir til svika á þeim. „Þá sjáum við þessa breytingu sem hefur orðið á þessum svikum og gátum varað við breytingunni. Í henni fólst að núna eru brotamenn farnir að nota talgervil í samskiptum sínum við þá sem hringt er í. Áður fylgdu oft tilkynningar um að aðili hefði hringt sem hafði talað bjagaða ensku en í dag er þetta þannig að þessir talgervlar tala flotta íslensku og hringja úr íslenskum númerum.“ Netbrot virði ekki landamæri Þannig hafi lögreglan aukna yfirsýn yfir þróun netógnar. „Netbrotin virða engin landamæri, bara eins og skipulögð brotastarfsemi almennt er, og þessi brot geta beinst að stórum hópi fólks á mjög skömmum tíma. Og það skiptir þá máli að við höfum verkfæri og skilvirkari leiðir til þess að taka á þessum málum.“ Agnes segir fjárhæðir sem fólk tapar á breiðum skala. „En við erum búin að taka það saman að sem sagt tilkynnt fjárhagstjón á þessu tímabili frá því gáttin opnaði er rúmlega 91 milljón.“ Það sé þó aðeins bara það sem sé tilkynnt, fjárhæðirnar geti verið meiri. „Við náttúrulega getum aldrei vitað í raun hvað það er sem ekki er tilkynnt, en þetta eru náttúrulega brot sem eru þess eðlis að því miður þá virðist oft felast einhver skömm í því að verða fyrir þeim. En við erum alltaf að tala um það að það á aldrei að felast skömm í því þegar það er brotið gegn þér. Það á alveg eins við um þessi brot sem og önnur, þannig að við hvetjum fólk eindregið til þess að leita til okkar, telji það sig hafa orðið fyrir broti.“
Netglæpir Netöryggi Lögreglumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira