Viðskipti innlent

Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum

Árni Sæberg skrifar
Ragnar Bragi, til vinstri, og Sölvi Geir, til hægri.
Ragnar Bragi, til vinstri, og Sölvi Geir, til hægri. Vísir

Heildsalan Kansler ehf. hagnaðist um sextíu milljónir króna á sölu nikótínpúða í fyrra. Félagið er í eigu fótboltastjarnanna Sölva Geirs Ottesen, þjálfara Víkings, og Ragnars Braga Sveinssonar, fyrirliða Fylkis, auk Sigurþórs Sigurðssonar. Heildsalan selur aðeins eina tegund nikótínpúða, Ice, sem framleiddir eru af félagi í þeirra eigu.

Þetta kemur fram í ársreikningi Kansler fyrir síðasta ár. Samkvæmt nýjustu skráningu í fyrirtækjaskrá er Kansler alfarið í eigu Ragnars Braga en um áramótin komu þeir Sölvi Geir og Sigurþór inn í félagið í gegnum félagið Nicopods ehf. 

Rekstrartekjur Kansler námu 286 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársreikningi og hagnaður eftir tekjuskatt 59,7 milljónir króna. Heildareignir félagsins nema 212 milljónum króna en þar ef eru 63 milljónir króna eigið fé og 149 milljónir króna skuldir.

Samanborið við árið áður margfölduðust bæði tekjur og hagnaður en árið 2024 námu tekjur 61 milljón króna og hagnaður sjö milljónum.

Ársreikningur Nicopods fyrir síðasta ár hefur ekki verið birtur en árið 2024 námu rekstrartekjur þess 645 milljónum króna og hagnaður 54 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×