Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. maí 2026 22:00 Cristian Romero verður langt frá Lundúnum þegar örlög Tottenham ráðast. George Wood/Getty Images Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, kom Cristian Romero til varna en segist skilja vel pirring stuðningsmanna sem eru ósattir við að fyrirliðinn hafi flogið til Argentínu frekar en að vera viðstaddur fallslag liðsins.
Romero er meiddur en hefur vakið mikið umtal með ferðalagi sínu til Argentínu. Hann flaug þangað í einkaþotu með fjölskyldu sinni fyrr í vikunni og sást síðan á æfingasvæði uppeldisfélags síns Belgrano í gær. Í stað þess að vera viðstaddur fallslag Tottenham gegn Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag verður Romero á leik Belgrano gegn River Plate í lokaumferð argentínsku deildarinnar. Forseti Belgrano staðfesti fyrr í dag að Romero myndi sitja sér við hlið í stúkunni. 🚨 #THFC Captain Cristian Romero at the training ground of his boyhood club Belgrano, who he has decided to prioritise instead of the club that pay his wages and could potentially be relegated in 3 days time…Absolutely disgraceful! 🤬🇦🇷 pic.twitter.com/zExxhP1C8N— Hotspur Lane (@HotspurLane) May 21, 2026 Tottenham er tveimur stigum frá fallsvæðinu og mætir Everton í lokaumferðinni. West Ham er þar fyrir neðan og mætir Leeds í lokaumferðinni. „Hann talaði við læknateymið og þau ákváðu í sameiningu að hann myndi klára endurhæfinguna eftir meiðslin í Argentínu,“ sagði Roberto De Zerbi á blaðamannafundi í dag. De Zerbi sagði þá Romero hafa átt gott spjall í síðustu viku. Þjálfarinn setti ekkert út á að Romero færi til Argentínu en þar mun hann dvelja þar til argentínska landsliðið kemur saman í æfingabúðir fyrir HM. De Zerbi sagði fjarveru hans ekki skipta neinu máli en sýndi pirruðum stuðningsmönnum liðsins skilning. „Hann mun ekki breyta neinu, hvort sem hann væri á vellinum eða ekki… Leiðtogar eru mismunandi. Ben Davies talaði við mig fyrr í dag og spurði hvort hann mætti vera með okkur fram að leik. Við munum gista á hóteli á morgun og hann vildi vera með liðsfélögunum fyrir leikinn. Romero er hins vegar að undirbúa sig fyrir HM og að jafna sig af meiðslum.“
Tottenham Hotspur Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira