Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar 26. maí 2026 12:30 Ég get ekki hætt að hugsa um þetta mál. Ekki bara vegna þess að karlmaður var sýknaður af ákæru um nauðgun því ég er hætt að láta það koma mér á óvart það sem situr mest í mér er hvernig svona mál sýna aftur og aftur hversu mikið er lagt á þolendur í kynferðisbrotamálum. Þeir þurfa að bregðast rétt við í aðstæðum þar sem það er oft ekki einu sinni raunhæft að ætlast til þess. Þolandi þarf að muna rétt segja rétt frá og bregðast rétt við. Hún má ekki frjósa, en heldur ekki bregðast of harkalega við. Hún þarf að fara strax á neyðarmóttöku, segja nógu skýrt nei, segja það á réttum tíma, með réttum orðum þannig að enginn geti síðar haldið því fram að hann hafi kannski ekki skilið. En fólk í áfalli hagar sér ekki alltaf eins og kennslubók. Það frýs. Það reynir að komast út úr aðstæðum án þess að gera þær hættulegri. Það segir stundum það sem það heldur að þurfi til að fá manninn til að hætta. Það er ekki ótrúverðugt. Það er mannlegt. Ef vinkona er viðstödd þarf hún líka að vera fullkomið vitni. Hún má ekki vera of hrædd. Ekki of tengd þolanda. Ekki hafa heyrt of mikið frá vinkonu sinni eftir á. Já og ekki lýsa atvikinu með sterkari orðum en þolandinn sjálfur, en ef þetta gerðist fyrir bestu vinkonu mína og ég sæi hana brotna fyrir framan mig þá myndi ég líklega líka lýsa því af meiri hörku en hún. Því hún er þolandinn henni var nauðgað. Hún getur verið í losti, dofa, skömm eða sjálfsásökun. En karlmaðurinn? Hann getur djammað langt fram eftir morgni lent í slagsmálum sem enda á bráðamóttöku komið heim og tekið tvær konur með sér inn á heimili þar sem tveggja ára barnið hans er. Þetta snýst ekki um að foreldrar megi ekki skemmta sér. Auðvitað mega þeir það. Þetta snýst um að halda ruglinu áfram heima hjá sér klukkan sjö að morgni með tveggja ára barn í sama herbergi. Það er ekki eðlilegt. Tveggja ára barn er vaknað eftir sjö. Punktur. Samt virðist nóg að segja „barnið svaf“ og „ég skildi ekki“ og þá færist athyglin frá öllu hinu. Ekki að óttanum hennar. Ekki að því að konurnar fóru beint af heimilinu á neyðarmóttöku. Ekki að afleiðingunum sem þetta hafði á líf þolandans. Heldur að vafanum hans. Og þar liggur vandinn. Í svona málum er svo oft spurt hvenær heyrði hann nei? Eins og það sé aðalspurningin. Eins og samþykki sé sjálfgefið þangað til kona nær að hafna nógu skýrt, nógu hátt og á nógu fullkominn hátt til að réttarkerfið geti síðar samþykkt það. En rétta spurningin er Hvenær heyrði hann já? Hvenær sagði hún já? Hvenær var samþykkið skýrt? Að snúa sér undan er ekki samþykki. Að segja stopp er ekki samþykki. Að reyna að fara að sofa er ekki samþykki. Og hjá hverju einasta heilbrigða foreldri ætti það líka að vera skýr mörk að halda ekki áfram ef tveggja ára barnið þitt er vakandi inni í herberginu. Og þessi fjölmiðlamennska má líka fokka sér. Fyrirsögn eins og „Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun“ gerir ljótan veruleika að einhverri óheppilegri uppákomu eftir skemmtikvöld. Það er fegrun á aðstæðum sem eiga ekkert skylt við gleði. Betri fyrirsögn væri: „Karlmaður skilur tveggja ára barn eftir heima, djammar langt fram á morgun, endar á bráðamóttöku eftir slagsmál en í nauðgunarmáli er hann samt sá sem fær vafann og traustið." Höfundur er Iðjuþjálfi Aktivisti Þolandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar