Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 26. maí 2026 13:17 Svava Arnardóttir er formaður Geðhjálpar. Vísir/ívar Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað svokallað skjólshús í Breiðholti eins og til stóð vegna andstöðu íbúa við verkefnið. Formaður samtakanna segir málið birtingarmynd fordóma í garð fólks sem glímir við andlegar áskoranir.
Þetta kom fram á fundi Geðhjálpar sem haldinn var á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Rétt fyrir áramótin gerðu forsvarsmenn samtakanna samning við heilbrigðisráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið um að koma skjólshúsi á laggirnar. Húsnæðið var hugsað sem athvarf fyrir fólk sem glímir við andlegar áskoranir þar sem það gæti sótt þjónustu á jafningagrundvelli. Í tilkynningu frá Geðhjálp segir að unnið hafi verið að því að kynna úrræðið fyrir nágrönnum en áður en til þess kom hafi aðili úr heilbrigðisráðuneytinu haft samband við nágranna í námunda við skjólshúsið í þeim tilgangi að vara þá við áformunum, eins og það er orðað í tilkynningunni. Rætt var við Ingu Sæland um áformin í lok síðasta árs. Rótgrónir fordómar Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar segir að staðsetningin hafi verið mjög ákjósanleg fyrir verkefnið. „Við uppfylltum allar kröfur til þess að reka skjólshúsið í þessu umhverfi, þannig þetta snýr ekki að hugmyndafræði eða lagaumgjörð heldur miklu frekar rótgrónum fordómum og viðhorfi umhverfissins. Þannig við sjáum okkur ekki fært að skapa öruggt umhverfi fyrir fólk í tilfinningalegri krísu þar sem þeim myndi vera mætt með andúð.“ Eina í stöðunni sé því að selja húsnæðið. „Við erum loksins búin að kaupa húsnæðið en erum núna að fara að selja það.“ Hún segir hluta af verkefninu að skjólshúsið rísi í rótgrónum hverfum en ekki aðskilið frá samfélaginu. „Við finnum að í samfélaginu er aukin sundrung. Fólk segir: Þetta er flott og fínt úrræði en ekki í mínu hverfi.“ Forsvarsmenn Geðhjálpar muni þó ekki gefast upp en nú er unnið að því að finna nýja staðsetningu fyrir skjólshúsið.
Geðheilbrigði Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira