Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Árni Sæberg skrifar 26. maí 2026 14:00 Tölvugerð mynd af fyrirhuguðu hóteli. Eigendur Hótels Hjarðarbóls í Ölfusi leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hjarðarbóli, sem staðsett er á milli Hveragerðis og Selfoss. Nú þegar hafa verið teiknaðar upp hugmyndir að nýju hóteli og frekari uppbyggingu á svæðinu þar sem lögð verður áhersla á sjálfbærni og vistvænar lausnir.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Hótel Hjarðarból sé rekið af eigendum jarðarinnar, hjónunum Sigríði Helgu Sveinsdóttur og Guðbrandi Sigurðssyni. Að þeirra sögn hafi eftirspurn eftir vistvænni gistingu aukist verulega á síðustu árum og þau telji tækifæri felast í frekari uppbyggingu í Ölfusi. „Við höfum séð mikla breytingu á ferðaþjónustunni undanfarin ár þar sem sífellt fleiri ferðamenn sækja í rólegra umhverfi og nálægð við náttúruna, utan stærstu þéttbýliskjarna landsins,“ er haft eftir Guðbrandi. Nýta vind og heitt vatn Áformin geri ráð fyrir nýju hóteli ásamt frekari uppbyggingu tengdri ferðaþjónustu. Meðal þess sem horft er til í verkefninu séu lausnir tengdar vindorku, nýtingu heits vatns og uppbyggingu hleðslustöðva fyrir ferðamenn. Samkvæmt eigendunum verði lögð rík áhersla á sjálfbærni í allri uppbyggingu verkefnisins. „Við viljum halda áfram að þróa Hjarðarból með ábyrgum hætti og sjáum mikil tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu. Hugmyndirnar hafa þegar verið teiknaðar upp og nú leitum við að aðilum sem hafa áhuga á að koma að verkefninu með okkur,“ er haft eftir Sigríði. Á jörðinni sé einkavatnsveita sem hjónin hafi sjálf byggð fyrir reksturinn, en haft er eftir þeim að mikilvægt sé að halda vel utan um innviði á svæðinu enda fylgi því ákveðin ábyrgð að reka þjónustu á landsbyggðinni. Staðsetningin hafi reynst vel „Við höfum alltaf lagt áherslu á að vanda til verka og byggja upp starfsemi sem fellur vel að umhverfinu. Það skiptir okkur miklu máli að þeir gestir sem hingað koma upplifi bæði góða þjónustu og þá náttúru sem svæðið hefur upp á að bjóða,“ er haft eftir Guðbrandi. Hótelið hafi frá upphafi tekið á móti ferðamönnum af fjölmörgum þjóðernum auk skólahópa og annarra ferðahópa sem sækja í gistingu í grennd við helstu ferðamannastaði Suðurlands. Að sögn hjónanna hafi staðsetning Hjarðarbóls reynst vel, bæði vegna nálægðar við þjónustu og vegna þeirrar kyrrðar sem svæðið bjóði upp á.
Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Ölfus Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira