Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar 27. maí 2026 07:01 Fyrr í vikunni birtist grein á Vísi eftir Óðinn Frey Baldursson, formann Ungra Evrópusinna, þar sem hann svaraði grein eftir mig á sama miðli í síðustu viku. Í grein minni benti ég m.a. á að ef Ísland gengi í Evrópusambandið gæti sú staða hæglega komið upp í framtíðinni að gerð yrði krafa um það að Íslendingar yrðu kvaddir í sérstakan her sambandsins í nafni samstöðu eins og heimsmálin væru að þróast. Vísaði ég þar til annarra mála þar sem slík þróun hefði átt sér stað innan þess. Óðinn fullyrti í sinni grein að engin áform væru uppi um ESB-her og að slíkur her væri aðeins „hugarfóstur eins manns“, Evrópuþingmannsins Andrius Kubilius. Kubilius er hins vegar alls ekki þingmaður á þingi ESB heldur varnarmálastjóri sambandsins. Sem sagt æðsti embættismaður ESB á sviði varnarmála. Ég gat stöðu hans í grein minni og fyrir vikið all sérstakt að Óðni hafi tekist að gera hann að þingmanni. Fyrir utan að hann ætti að vita það sem talsmaður inngöngu í sambandið. „Það er satt að einn evrópuþingmaður, Andrius Kubilius, hefur lagt fram tillögu um stofnun slíks hers. En sú tillaga er ekki stefna sambandsins. Heldur hugarfóstur eins manns. Í Evrópusambandinu er fjölbreytt og fjölmenn flóra fólks með allskonar mismunandi skoðanir og hugmyndir, alveg eins og á Íslandi. Þótt einn þingmaður á Alþingi Íslendinga sé með ákveðna hugmynd eins og til dæmis um Íslenskan her þá þýðir það ekki að það sé stefna Íslands að stofna íslenskan her. Það sama gildir um Evrópusambandið,“ sagði í grein Óðins. Óðinn viðurkenndi reyndar síðar í grein sinni að hugmyndin um ESB-her ætti sér „einhverja stuðningsmenn umfram þennan eina þingmann“, sem sagt Kubilius varnarmálastjóra, þvert á fyrri fullyrðingu hans um að einungis væri um að ræða hugarfóstur hins meinta þingmanns. Staðreyndin er hins vegar sú að fjölmargir forystumenn innan ESB, bæði sambandsins sjálfs og ríkja innan þess, hafa á liðnum árum lýst yfir stuðningi við það að til verði á endanum Evrópusambandsher. Á meðal þeirra mörgu sem hafa lýst yfir stuðningi við ESB-her er Ursula von der Leyen, núverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, þegar hún var varnarmálaráðherra Þýskalands og forveri hennar Jean-Claude Juncker, fyrrverandi forsætisráðherra Lúxemborgar. Hið sama átti t.d. við Angelu Merkel, þáverandi kanslara Þýskalands, og á við um Emmanuel Macron núverandi forseta Frakklands. Nú síðast fyrr á þessu ári lýsti forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, stuðningi við ESB-her. Ekki er þó nóg með það heldur á það sama við um forystumenn samtaka frjálslyndra stjórnmálaflokka í Evrópu, ALDE, sem Viðreisn, flokkurinn sem Óðinn er félagi í var í framboði fyrir í Mosfellsbæ í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, tilheyrir. T.d. kallaði Marie-Agnes Strack-Zimmermann, oddviti ALDE á þingi ESB, eftir ESB-her á þingi samtakanna sem fram fór í lok október á síðasta ári. Þingið sat Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar fyrir hönd flokksins. Valérie Haye, forseti Renew Europe sem er þingflokkur ALDE á þingi ESB, sendi bréf til von der Leyens og Antónios Costa, forseta leiðtogaráðs sambandsins, fyrir rúmu ári fyrir hönd þingflokksins þar sem sagði að tímabært væri að ESB kæmi sér upp eigin her. Guy Verhofstadt, fyrrverandi leiðtogi ALDE á ESB-þinginu, sem var heiðursgestur á landsþingi Viðreisnar sl. haust og kallaði í ræðu sinni þar eftir því að ESB yrði að heimsveldi, hefur einnig kallað eftir slíkum her. Skoðanakannanir fyrir framkvæmdastjórn ESB hafa einnig sýnt mikinn stuðning við ESB-her á meðal íbúa ríkja sambandsins og í mörgum tilfellum meirihluta þeirra. Þetta er einfaldlega veruleikinn. Ég fór yfir það í grein minni að þróunin í átt að endanlegum ESB-her væri þegar komin talsvert áleiðis. ESB væri þannig t.d. bæði með eigið herráð og viðbragðssveitir sem störfuðu undir fána sambandsins. Kubilius varnarmálastjóri kallaði eftir því í janúar að til yrði 100 þúsund manna fastaher ESB. Ég benti einnig á það að varnir Íslands væru þegar eins tryggilega fyrir komið og þær yrðu með aðildinni að NATO en þó fyrst og fremst varnarsamningnum við Bandaríkin. Óðinn vildi meina að með því væri ég að reiða mig á tryggingu sem ég segði sjálfur að væri að veikjast og vísaði þar til þess að Bandaríkjamenn ætluðu að draga úr viðveru sinni í Evrópu. Fyrir liggur hins vegar að Ísland er í annarri stöðu en flest eða öll önnur Evrópuríki vegna landfræðilegrar legu sinnar eins og bandarískir forystumenn hafa bent á. Vegna hennar tengist öryggi Ísland landvörnum Bandaríkjanna. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar