Rodri ekki meira með KA í ár Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 20:15 Rodri meiddist í fyrri hálfleik gegn Þór þann 2. maí. Strax var ljóst að meiðslin gætu verið alvarleg en Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði sitt besta til að stappa í hann stálinu. Skjáskot/Sýn Sport Spænski fótboltamaðurinn Rodri, sem gegnt hefur svo mikilvægu hlutverki hjá KA síðustu sex ár, gæti mögulega hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.
Rodri meiddist í grannaslag KA gegn Þór í byrjun maí og nú er ljóst að hann sleit þar krossband í hné. Akureyringurinn Sæbjörn Steinke, blaðamaður Fótbolti.net, greindi frá þessu og Hallgrímur Jónasson þjálfari KA staðfesti tíðindin við Vísi. Rodri sleit krossband gegn Þór og verður ekki meira með á tímabilinu. Fer í aðgerð seinna í vikunni. Mögulega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir KA. #fotboltinet— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) May 26, 2026 Rodri er orðinn 37 ára gamall og með samning sem gildir aðeins út þessa leiktíð en Hallgrímur segir ekkert útilokað varðandi framhaldið hjá þessum frábæra, varnarsinnaða miðjumanni. Það sé enda öðrum til eftirbreytni hvernig Rodri sinni skrokknum með tíðum heimsóknum í ræktina. Nún bíði hann þess bara að komast í aðgerð og taki svo endurhæfinguna föstum tökum. Ljóst er að stórt skarð er fyrir skildi vegna meiðsla Rodri en Hallgrímur bendir þó á að þrátt fyrir meiðsli Spánverjans hafi KA fengið á sig næstfæst mörk allra liða í síðustu fjórum leikjum. KA-menn, með hinn tvítuga Markús Mána Pétursson og Hans Viktor Guðmundsson í hjarta varnarinnar, hafa fengið á sig tvö mörk í síðustu fjórum leikjum og aðeins Víkingar fengið á sig færri, eða eitt, í leikjunum fjórum fyrir slaginn við Stjörnuna í kvöld. Ljóst er þó að KA, sem seldi Ívar Örn Árnason til Breiðabliks fyrir tímabilið, mun leita eftir leikmanni til að bregðast við meiðslum Rodri en félagaskiptaglugginn opnast þó ekki aftur fyrr en 16. júlí.
Besta deild karla KA Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira