„Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. maí 2026 21:55 Óskar Hrafn gefur sínum mönnum fyrirmæli af hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Anton Brink Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var hæstánægður með sigur sinna manna gegn Val í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld.
KR-ingar voru án sigurs í síðustu þremur leikjum í öllum keppnum, en komust aftur á sigurbraut með nokku öruggum 3-1 sigri gegn Val í kvöld. „Tilfinningin er góð og ég verð nú að segja það að mér finnst þú nú heldur dramatískur þegar við erum að tala hérna um þrjá leiki á þrjátíu leikja tímabili,“ sagði Óskar í leikslok. „Auðvitað liggur það í hlutarins eðli að það er skemmtilegra að vinna heldur en að tapa. Mér fannst mér svara þessum Blikaleik - ef það þurfti að svara honum - þá fannst mér menn svara honum vel í kvöld. Orkan var góð og fyrri hálfleikurinn var frábær. Auðvitað var vindurinn mikill á annað markið og við vorum með vindi í fyrri hálfleik. Mér fannst við hafa átt að skora fleiri mörk og svo náum við að standa af okkur fyrsta korterið í seinni hálfleik. Þar komu Valsmenn sterkir út. Þeir eru með gott lið og frábær einstaklingsgæði,“ bætti Óskar við og hélt áfram. „Eftir fyrsta korterið í seinni hálfleik fannst mér þetta engin spurning og ég er mjög sáttur með spilamennskuna.“ Óskar hefur mikið talað um orku og hugrekki í kringum leiki KR undanfarnar vikur og það var engin skortur á því frá hans mönnum í kvöld. „Svo sannarlega. Raunverulega er ekkert hægt að biðja um mikið meira. Þó veðrið hafi verið fínt þá voru aðstæður krefjandi fyrir bæði lið. Mér fannst við ná að spila fínan fótbolta á löngum köflum í leiknum og pressan var aggressív. Svo þegar við þurftum að verja markið okkar þá gerðum við það ágætlega. Heilt yfir er ég bara mjög sáttur,“ sagði Óskar. „Við erum búnir að spila við Val núna þrisvar á innan við tveimur mánuðum og það er ekki létt verk að vinna þá þrisvar. Ég er auðvitað mjög sáttur við það. Ég fer bara sáttur á koddann í kvöld.“ „Ég er farinn að nota lesgleraugu“ Valsmenn minnkuðu muninn með marki úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik, en Óskar hafði lítinn áhuga á því að tjá sig um það atvik. „Þórður dæmir nú yfirleitt ekki víti nema það sé nánast mannsmorð inni í teig. Ég ætla bara að treysta honum. Einhverjum fannst þetta soft, en ég ætla að treysta honum. Ég ætla ekki að fara að eyða tíma í að tjá mig um þetta, ég stend þarna fimmtíu metrum frá og er farinn að nota lesgleraugu. Það eru engar líkur á því að ég væri að fara að sjá hvort hann togaði of mikið eða hvað. Þetta var bara víti og áfram gakk.“ Hann hrósaði þó liðinu fyrir að standa af sér þetta áhlaup Valsmanna. „Við fáum á okkur mark eftir mínútu í Kópavogi og stóðum ekki upp eftir það högg en mér fannst við svara þessu vel. Þegar allt er skoðað þá var þetta bara mjög sanngjarn sigur. Við vorum sterkari aðilinn. En auðvitað er það þannig að þegar þú ert 2-1 yfir á móti Val þá eru þeir með einstaklingsgæði fram á við í Tryggva og Lúkasi Loga sérstaklega sem eru bara þess eðlis að þú mátt ekki slaka á í eina sekúndu. Þú mátt ekki sofna á verðinum og mér fannst menn gera það vel þó þeir hafi fengið einhver færi. En Guð hjálpi mér, við fengum líka fleiri færi til að skora mörk þannig ég held að menn geti bara verið sáttir. Ég held að áhorfendur hafi skemmt sér vel og við unnum. Það er bara gott að vera til.“ Engir gormar til staðar Eftir tapið gegn Breiðabliki í síðustu umferð talaði Óskar um að mögulega hafi menn flogið of nálægt sólinni eftir sterka byrjun KR-inga á Íslandsmótinu. Það stóð ekki á svörum frá honum þegar hann var í kvöld spurður hvort nú þyrfti að passa að leikmenn færu ekki á of mikið flug. „Hvað viltu margar líkingar núna?“ spurði Óskar. „Mér sýnist það vera þannig að menn hafi lært af þessu, en auðvitað er það bara í mannskeppnunni að þegar það gengur vel þá tekurðu aðeins á loft. Svo er þetta bara spurning um það hvort þú náir að lenda á milli leikja. Þetta fer að hafa áhrif á frammistöðuna og þú heldur að þú þurfir að leggja minna á þig heldur en þú þurftir að gera þegar þú varst að standa þig vel. Við erum alltaf að draga einhvern lærdóm og alltaf að verða vitrari og vitrari. Ég held að við tökum þessa þriggja leikja reynslu þar sem við unnum ekki leik, við tökum hana sem lærdóm í næstu leiki.“ „Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því að menn fari að fljúga eitthvað hátt eftir þennan leik. Það er búið að skjóta menn niður. Menn eru ekki með einhverja gorma þannig að þeir geti bara hoppað beint aftur upp í himinskaut. Við þurfum að halda áfram að vinna því við vitum hvað við þurfum að gera til að vera góðir og hvað við þurfum að gera til að vinna leiki. Við þurfum að ná því fram í hverjum einasta leik. Við höfum ekkert efni á neinu öðru en að vera upp á okkar allra besta og það sama verður uppi á teningnum á sunnudaginn á móti KA,“ sagði Óskar að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Valur Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Sjá meira