Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Aron Guðmundsson skrifar 28. maí 2026 07:30 Hafdís lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að verða fyrir fordómum sökum kynhneigðar sinnar í úrslitaeinvígi efstu deildar. Vísir/Sigurjón Hafdís Renötudóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals og landsliðskona í handbolta er gríðarlega vonsvikin með niðurstöðu HSÍ í máli er sneri að fordómum í hennar garð í úrslitaeinvígi efstu deildar sökum kynhneigðar hennar. Málið tók sinn toll á Hafdísi sem þurfti að grafa djúpt í leit að styrk.
Hafdís stóð uppi sem Íslands-, deildar- og bikarmeistari á nýafstöðnu tímabili en fordómar sem hún varð fyrir í úrslitaeinvígi efstu deildar gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, sökum kynhneigðar sinnar, settu ljótan blett á tímabilið Fordómarnir birtust í formi söngs þar sem vísað var til kynlífs tveggja kvenmanna en Hafdís er samkynhneigð. „Þetta dæmi var hreint út sagt ömurlegt,“ segir Hafdís í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Það verður að segjast alveg eins og er. Þetta var ótrúlega krefjandi. Ég persónulega þurfti að grafa mjög djúpt bara til þess að halda áfram að sýna styrk, fyrir aðra og að vera fyrirmynd fyrir sama fólk.“ „Maður missti svolítið sjónar á því af hverju maður er í þessu. Að mæta var mikilvægt. Mér fannst það mikilvægara heldur en að mótmæla á annan hátt. Mér fannst mikilvægara að sýna það að vera fyrirmynd. Sýna það í verki frekar en með einhverjum orðum til dæmis. Sem betur fer skilaði það sér og við stöndum uppi sem Íslandsmeistarar.“ Málið vakti mikla athygli, blandaðist inn í pólítík og kosningabaráttu og lauk með því að Handknattleiksdeild ÍBV var gerð sekt upp á 150 þúsund krónur sökum vítaverðrar og ósæmilegrar hegðunar stuðningsmans sem var settur í tímabundið bann. „Þetta var athygli sem var ótrúlega mikil á tíma þar sem að ég hefði bara átt að vera einbeita mér að klippunum af andstæðingunum.“ Verðstimpill settur á Íslandsmeistaratitilinn Ertu sátt með það hvernig tekið var á málinu? „Ég er gríðarlega vonsvikin út í niðurstöðu HSÍ. Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi. Það versta í þessu öllu saman er svo að mér finnst hafa verið settur verðstimpill á Íslandsmeistaratitilinn eða titil yfir höfuð. Þessar upplýsingar segja manni það. Þú getur brotið leikmann nógu mikið, eða nógu marga leikmenn, þannig að þeir spili ekki sinn leik og þá ertu búinn að vinna titilinn. Sem betur fer gerðist það ekki í þessu einvígi og við unnum.“ „Það hefði þurft að koma miklu hærri refsing til þess að sýna fordæmi vegna þess að nú er búið að gefa það út í kosmósið að þetta sé í lagi vegna þess að 150 þúsund krónur er upphæð sem ég get borgað hundrað sinnum. Það er ekki neitt. Það hefði þurft að vera ein góð refsing svo svona komi aldrei aftur fyrir.“ Hafdís í leik með íslenska landsliðinu á HM Tom Weller/Getty Images Hafdís er lykilmaður í íslenska landsliðinu og óneitanlega er málið snúið hvað varðar sambandið við HSÍ. „Þetta voru mikil vonbrigði. Það var tvennt í stöðunni. Ég á enn þá eftir að ræða þetta við HSÍ, fá frekari skýringar, en þetta er hræðilegt. Þessi niðurstaða. Við þurfum aðeins að setjast niður saman HSÍ og ræða málin áður en ég segi eitthvað hér.“
Valur Olís-deild kvenna HSÍ Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira