Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 11:30 Andrea Kolbeinsdóttir mætir full sjálfstrausts á EM. Vísir/Sigurjón Andrea Kolbeinsdóttir náði frábærum árangri í sterku fjallahlaupi á Ítalíu síðustu helgi og mætir með seglin þanin á komandi Evrópumót.
Andrea tók þátt í hlaupi á Golden Trail-mótaröðinni, þar sem sterkustu fjallahlauparar heims eru meðal keppenda. Hlaupið var krefjandi, í mikilli hæð, 21 kílómetra langt og með 1.700 metra hækkun í 25 stiga hita og háfjallalofti. Andrea kom þrátt fyrir erfiðar aðstæður fimmta í mark, á undan mörgum af þeim bestu í heimi. „Það tókst fjórum að vera á undan mér. En að vera fimmta í svona sterku hlaupi, ég er bara ótrúlega sátt. Það er gaman að bera sig saman við þessar stelpur sem maður vann,“ segir Andrea í Sportpakkanum á Sýn. „Golden Trail hlaupaserían er með þeim sterkustu í heiminum og þarna mæta sterkustu keppendur í heimi. Það voru tvær frá Kenía þarna og ein sterk frá Rúmeníu. Maður er búin að fylgjast með þeim mjög lengi, það eru alltaf gerð myndbönd um þessi hlaup sem ég hef verið að horfa á. En svo núna er maður mættur þarna með þeim og að fagna með þeim. Topp fimm fá freyðivínsflösku og fagna. Það var smá súrrealískt að vera í því með þeim.“ Upphitun fyrir stressboltann Hlaupið gefur sjálfstraust fyrir komandi verkefni, sem er Evrópumótið í fjallahlaupum í Slóveníu eftir rúma viku. „Ég hef verið að glíma við smá stress og kvíða fyrir svona stórar keppnir. Þannig að hugsunin bakvið það að hafa farið í þetta hlaup síðustu helgi var að mæta í ótrúlega sterkt hlaup til að æfa þessa pressu og stress fyrir EM, sem er aðalmarkmiðið,“ segir Andrea sem hefur unnið í því að minnka áhrif stress og kvíða á frammistöðuna. „Ég er svo þakklát hvað það gekk vel. Af því að núna er ég ótrúlega spennt fyrir EM og veit ég get tæklað þetta og er búin að vinna mikið í því að höndla stressið. Það er mjög gaman að finna hvað það er gott stress og er núna ótrúlega spennt að standa á því stóra sviði líka,“ segir Andrea. EM í fjallahlaupum fer fram laugardaginn 6. júní og íslenski landsliðshópurinn heldur út snemma í næstu viku. Lengri útgáfu af viðtalinu við Andrea má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Frábær árangur sem vinnur gegn kvíðanum
Hlaup Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Emil Barja tekur við Stjörnunni Sjá meira