Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Agnar Már Másson skrifar 28. maí 2026 21:09 Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda eru stærstu eigendur Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Nasdaq/Vísir/Vilhelm Hagnaður Ísfélagsins í Vestmannaeyjum nam 2,8 milljörðum króna fyrsta ársfjórðung 2026, sem er umtalsverður viðsnúningur miðað við sama tímabil síðasta ár. Stjórn félagsins hefur ákveðið að greiða hluthöfum út arð vegna síðasta rekstrarárs sem nemur samtals 2,1 milljörðum króna.
Rekstrartekjur félagsins fyrsta ársfjórðung námu um 9 milljörðum króna og skilaði félagið hagnaði upp á 2,8 milljarða króna, samkvæmt nýbirtu ársfjórðungsyfirliti. Heildareignir félagsins námu samtals 108 milljörðum króna 31. mars 2026. Eigið fé í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 var 73,4 milljarðar króna og skuldir og skuldbindingar 36,6 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall var því 66,7 prósent. Félagið tvöfaldaði í raun tekjur sínar miðað við sama tímabil í fyrra, en þá námu tekjur 4,6 milljörðum króna og félagið skilaði tapi af þeim árshluta upp á 400 milljónir. Það virðist einfaldlega skýrast af auknum tekjum af útgerð og vinnslu. Fram kemur í reikningnum að á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 hafi verið samþykkt að greiða hluthöfum arð sem næmi samtals um 2,1 milljarði króna vegna rekstrarársins 2025. Var hann greiddur hluthöfum þann 15. maí 2026, samkvæmt reikningnum. Þar af mun rúmlega milljarður hafa farið til ÍV fjárfestingafélags ehf. enda er félagið skráður eigandi 49,2 prósenta hlutafjár í Ísfélaginu og þar af leiðandi stærsti eigandi í félaginu. Fjárfestingafélagið er í eigu fjölskyldu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, sem er stærsti hluthafi í Árvakri, sem gefur út Morgunblaðið. Næststærsti eigandinn er útgerðarfélagið Marteinn Haraldsson ehf. með um 11,4 prósent sem fær því greiddar um 240 milljónir króna í þessari arðgreiðslu. Félagið er meðal annars í eigu Ólafs Helga Marteinssonar, aðstoðarforstjóra Ísfélagsins og fyrrverandi formanns Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Ísfélagið Sjávarútvegur Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira