Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar 1. júní 2026 10:01 Þegar íslenska þjóðin sagði „Nei“ við Icesave var það meira en afstaða til samnings. Það var yfirlýsing um sjálfstæði, ábyrgð og fullveldi. Þá stóð Ísland frammi fyrir miklum þrýstingi frá stærri ríkjum Evrópu, alþjóðastofnunum og íslenskum broddborgurum sem sögðu að við ættum einfaldlega að hlýða og borga. Talað var um að landið myndi einangrast og yrði „Kúba norðursins“ ef ekki yrði sagt ,,Já“. Í fyrri Icesave atkvæðagreiðslunni sögðu 93,2% þjóðarinnar „Nei“ og 1,8% „Já“. Við þekkjum svo framhaldið. Ísland var sýknað af EFTA-dómstólnum af meginkröfum Breta og Hollendinga, við höfðum fullnaðarsigur. Íslendingar neituðu að taka á sig skuldir sem almenningur hafði hvorki stofnað til né samþykkt, þrátt fyrir alls konar „hótanir“. Við neituðum að láta reikninginn fyrir mistök og óreiðu annarra lenda á íslenskum skattgreiðendum. Það „Nei“ varð eitt stærsta sjálfstæðismál þjóðarinnar á þessari öld. Nú stöndum við aftur frammi fyrir stórri ákvörðun. Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á ný viðræður við Evrópusambandið snýst ekki bara um formsatriði. Hún snýst um það hvort Ísland eigi að færa sífellt meira vald, fjármuni og ábyrgð til sambands sem byggir í auknum mæli á sameiginlegri skuldsetningu og tilfærslu fjármuna milli ríkja. Ísland er ekki fátækt ríki sem þarf að „komast inn í Evrópu“. Ísland er eitt ríkasta land Evrópu og heims. Landsframleiðsla á mann hér á landi er meðal þeirrar hæstu í álfunni (samkvæmt IMF, OECD og Alþjóðabankanum) og mun hærri en í stórum ESB-ríkjum á borð við Frakkland, Spán, Ítalíu og Portúgal. Á sama tíma glíma mörg Evrópuríki við miklar skuldir, hægan hagvöxt og langvarandi ríkisfjármálaóreiðu. Einmitt þess vegna myndi Ísland nær örugglega verða nettógreiðandi inn í Evrópusambandið. Við værum ekki að ganga inn í Evrópusambandið til að þiggja styrki heldur til að senda árlega út verulega fjármuni, sem ein ríkasta þjóð Evrópu. Reynslan frá öðrum ríkum þjóðum er skýr. Þýskaland greiðir árlega tugi milljarða evra meira inn í ESB en það fær til baka. Holland greiðir milljarða evra umfram sinn hlut, líkt og Danmörk og Svíþjóð. Á sama tíma renna gríðarlegir fjármunir til ríkja sem hafa árum saman rekið sig með skuldum og ósjálfbærum ríkisútgjöldum. Þetta snýst því ekki um „ókeypis aðgang“ að Evrópu. Við höfum hann nú þegar. Í gegnum EES-samninginn hefur Ísland fullan aðgang að innri markaði Evrópu. Þar að auki hefur Ísland gert víðtæka fríverslunarsamninga í gegnum EFTA við tugi ríkja um allan heim, þar á meðal Bretland, Kanada, Singapúr, Suður-Kóreu, Mexíkó og fleiri ríki í Asíu og Suður-Ameríku. Ísland hefur því þegar tryggt sér aðgang að mörkuðum heimsins án þess að afsala sér yfirráðum yfir t.d. sjávarauðlindum, orkumálum eða löggjöf. Innganga í ESB gæti hins vegar sett einhverja þessara samninga í uppnám, svo ekki sé talað um varnarsamning okkar við Bandaríkin. Nú heyrist gamalkunnugt stef frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í anda hótana í Icesave. Í viðtali 1. apríl 2026 sagði hún um þjóðaratkvæðagreiðsluna í sumar: „Það muni hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir almenning ef „Nei“ verður niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.“ Hér er óttanum sáð, svipuð orðræða og í Icesave. Nú er talað um „afdrifaríkar afleiðingar“ ef þjóðin segir ,,Nei“ við áframhaldandi viðræðum við Evrópusambandið. Enn á ný er almenningi sagt að „Nei“ geti haft hættulegar afleiðingar fyrir þjóðina. En sagan kennir okkur mikilvæga lexíu, smáþjóð má ekki missa sjálfstraustið. Hún má ekki taka stórar ákvarðanir út frá hræðslu eða þrýstingi heldur réttum og miklum upplýsingum. Rétt eins og í Icesave snýst þetta ekki um að hafna samstarfi við önnur ríki. Ísland á áfram að eiga góð samskipti og frjáls viðskipti við Evrópu og allan heiminn. Kjarni málsins er annar, hvort við eigum að láta stjórnast af ótta eða standa vörð um rétt okkar til að ráða eigin framtíð sjálf. „Nei“ við Icesave varð tákn um þjóð sem hafði kjark til að standa með sjálfri sér þegar þrýstingurinn var mestur. „Nei“ í haust getur orðið sama tákn. Tákn um þjóð sem trúir því að hún geti staðið á eigin fótum, verslað við heiminn og haldið áfram að byggja upp eitt ríkasta og frjálsasta samfélag heims, án þess að íslenskir skattgreiðendur verði látnir borga fyrir óreiðu annarra ríkja. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar