Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Stefán Árni Pálsson skrifar 1. júní 2026 23:43 Björgvin Hafþór Ríkharðsson í leik með ÍR. Vísir/Anton Brink Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Björgvin Hafþór Ríkharðsson til næstu tveggja ára. Með samningnum snýr hinn reynslumikli leikmaður aftur í raðir Borgnesinga eftir að hafa áður leikið með félaginu tímabilið 2023–2024.
Björgvin hefur á undanförnum árum aflað sér dýrmætrar reynslu og er talinn styrkja lið Skallagríms verulega fyrir komandi verkefni. Auk þess að vera kraftmikill leikmaður á vellinum býr hann yfir leiðtogahæfileikum sem félagið vonast til að muni nýtast yngri leikmönnum hópsins. „Ég hef þekkt Bjögga frá því ég teymdi undir honum sem litlum dreng í sveitinni, spilaði með honum hans fyrstu meistaraflokksleiki og mig hlakkar mikið til að fá að þjálfa hann í vetur. Hann á eftir að koma með mikla reynslu og kraft inn í hópinn,“ segir Pálmi Sævarsson, þjálfari Skallagríms, í yfirlýsingu frá Sköllunum, en liðið hafnaði í 6.sæti 1.deildarinnar í vetur. Björgvin segist sjálfur afar ánægður með að vera kominn aftur til félagsins. „Ég er mjög spenntur að vera kominn aftur í Skallagrím. Ég á góðar minningar frá fyrri tíma mínum hjá félaginu og hlakka til að hitta bæði strákana og stuðningsfólkið aftur. Ég fer inn í tímabilið með það hugarfar að leggja hart að mér á hverjum degi, hjálpa liðinu eins mikið og ég get og halda áfram að bæta mig sem leikmaður. Vonandi getum við byggt upp sterkan hóp sem er byggður upp á heimamönnum og átt gott tímabil saman,“ segir Björgvin sem hefur verið á mála hjá ÍR-ingum síðustu tvö tímabil. Skemmtileg tenging fylgir endurkomu hans í Borgarnes. Þegar Björgvin lék síðast með Skallagrími þjálfaði hann 9. og 10. flokk félagsins. Nú eru margir þeirra leikmanna orðnir liðsfélagar hans í meistaraflokki.
Skallagrímur Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sjá meira