Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar 2. júní 2026 08:46 Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, tjáði sig um dánaraðstoð í Reykjavík síðdegis 29. maí sl. Af því tilefni vil ég árétta nokkur mikilvæg atriði. Steinunn nefnir þörfina fyrir dýpri og þroskaðri umræðu um dánaraðstoð. Ég er sammála því að umræðan þurfi að vera vönduð og ábyrg, en ég tek ekki undir að hún hafi verið óþroskuð. Þvert á móti nálgast margir þetta viðkvæma mál af mikilli alvöru, mannúð og virðingu. Steinunn vísar til þess að læknar sverji eið um að skaða ekki. En spurningin er hvað telst skaði. Getur það verið skaði að neita dauðvona manneskju, sem þjáist óbærilega, um að deyja á eigin forsendum? Fyrir suma felst skaðinn einmitt í því að þurfa að þola lífslok sem þeir upplifa sem ómannúðleg, niðurlægjandi eða óbærileg. Steinunn nefnir að stór hluti lækna þjáist fyrir að veita dánaraðstoð. Dánaraðstoð á aldrei að verða hversdagsleg eða auðveld athöfn. Hún er óafturkræf ákvörðun sem snertir kjarna læknisfræðinnar. En þunginn getur líka endurspeglað alvöru ákvörðunarinnar og virðingu fyrir sjúklingnum, ekki endilega að læknirinn telji hana ranga. Rannsóknir sýna að reynsla lækna er fjölbreytt. Sumir lýsa siðferðilegri togstreitu, vanlíðan og álagi en aðrir upplifa starfið sem gefandi. Stefanie Green og Ellen Wiebe, kanadískir læknar sem hafa veitt yfir 400 einstaklingum dánaraðstoð frá því að hún varð lögleg í Kanada árið 2016, hafa til dæmis lýst því sem miklum forréttindum að geta hjálpað sjúklingi að uppfylla skýran lokavilja hans. Þær hafa jafnframt sagt að það eitt að geta boðið þennan möguleika geti veitt sjúklingum mikinn létti og verið eitt það mikilvægasta sem læknar geri við lok lífs. Steinunn bendir á áhyggjur af þrýstingi áviðkvæma hópa um að óska eftir dánaraðstoð, til dæmis vegna félagslegrar stöðu, þjónustuskorts eða þess að einhverjum finnist hann vera byrði. Þær þarf að taka alvarlega. Lausnin er þó ekki að banna öllum valkostinn heldur að ákveða skýr lög, þröng skilyrði, faglegt mat og óháð eftirlit. Markmiðið hlýtur að vera að vernda bæði viðkvæma einstaklinga og sjálfsákvörðunarrétt þeirra sem uppfylla ströng skilyrði. Steinunn nefnir „rennibrautaráhrif“ og vísar til Hollands, Belgíu og Kanada þar sem upphaflega þröng lög hafi verið víkkuð frá því að ná aðeins til fólks með banvæna sjúkdóma yfir í fólk með geðsjúkdóma eða jafnvel þá sem ekki eru með banvænan sjúkdóm. Slíkar breytingar hafa ekki orðið af sjálfu sér heldur með pólitískum og samfélagslegum ákvörðunum. En það að einhver ríki hafi farið þá leið þýðir ekki sjálfkrafa að Ísland muni gera það sama. Steinunn nefnir að flest fólk fái fallegt og friðsælt andlát með góðri lífslokameðferð. Það er gott og mikilvægt. En dánaraðstoð snýst ekki um flest andlát. Hún snýst um þau fáu tilvik þar sem þjáningin er óbærileg, sjúkdómur ólæknandi og önnur úrræði duga ekki. Okkur í Lífsvirðingu berast reglulega frásagnir af erfiðum, kvalafullum og í sumum tilvikum ómannúðlegum lífslokum. Aðstandendur segja frá ófullnægjandi verkjastillingu, óróleika, angist og þeirri tilfinningu að ekki hafi tekist að tryggja mannlega reisn. Þetta er ekki reynsla allra, en hún er raunveruleg og verður að heyrast. Steinunn vísar til þess að Alþjóðasamtöklækna hafi formlega lagst gegn dánaraðstoð, sem er rétt. Hins vegar samþykkti fulltrúadeild bandarísku læknasamtakanna árið 2019 að einstakir læknar geti, á grundvelli eigin samvisku, veitt eða hafnað dánaraðstoð án þess að brjóta gegn faglegum skyldum sínum. Víða hafa læknafélög tekið hlutlausa afstöðu og lagt áherslu á að virða bæði aðgengi sjúklinga og samviskufrelsi lækna. Kannanir benda til þess að afstaða lækna á Norðurlöndum sé víða mun fjölbreyttari en formleg afstaða læknafélaganna gefur til kynna. Varðandi þrýsting á lækna þá þekki ég ekki til sterkra rannsóknarheimilda sem sýna að læknar sem neita dánaraðstoð sæti kerfisbundinni gagnrýni frá „hörðustu stuðningsmönnum“ dánaraðstoðar, líkt og Steinunn orðar það. Aðalatriðið er að læknar hafa samviskufrelsi og eru ekki skyldugir til að veita dánaraðstoð. Hollenska læknafélagið segir þó skýrt að læknar sem eru andvígir eigi að njóta virðingar en jafnframt að aðstoða sjúkling við að komast í samband við annan lækni. Þetta er ekki lagaleg tilvísunarskylda heldur skilgreind sem siðferðileg og fagleg skylda. Dánaraðstoð á ekki að koma í stað líknarmeðferðar heldur vera afmarkað úrræði þegar einstaklingur er með ólæknandi sjúkdóm, upplifir líkamlega eða tilvistarlega þjáningu sína sem óbærilega, er hæfur til að taka ákvörðun og hefur ítrekað og sjálfviljugt óskað eftir aðstoð. Gott aðgengi að hágæða líknarmeðferð og öðrum stuðningi útilokar ekki dánaraðstoð. Steinunn nefnir ekki þá óvissu sem getur skapast þegar lífslokum kann að vera flýtt án skýrs lagaramma. Lífsvirðingu hafa borist frásagnir sem vekja spurningar um slíkt. Hversu oft slíkt gerist, við hvaða aðstæður og með hvaða hætti, er erfitt að vita. Þess vegna þarf opinskáa umræðu og skýran ramma, frekar en óljóst og ósýnilegt ástand. Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um hlutverk og tilfinningar lækna heldur líka um réttindi sjúklinga, sjálfræði og reisn. Hún snýst ekki um að velja dauðann fram yfir lífið, heldur um að tryggja mannúðleg og virðuleg lífslok þegar önnur úrræði duga ekki. Höfundur er formaður Lífsvirðingar, sem vinnur að lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar