Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Jakob Bjarnar skrifar 2. júní 2026 10:35 Ólafur Þór segir að um sé að ræða eitt glæsilegasta golfsvæði landsins. Gert er ráð fyrir því að á háannatíma geti allt að 370 einstaklingar verið á svæðinu samtímis og að um 1.350 kylfingar fari í gegnum vellina á hefðbundnum degi. vísir/ívar fannar Hafnfirðingar eru komnir vel á veg með hugmyndavinnu sem snýr að gríðarlega metnaðarfullri uppbyggingu á golfsvæði í Snókalöndum við Bláfjallaveg. Gert er ráð fyrir uppbyggingu hvorki meira né minna en þriggja valla – tveggja 18 holu valla og eins 12 holu vallar – ásamt öflugu æfingasvæði, innanhússaðstöðu og öðrum nauðsynlegum innviðum.
Gert er ráð fyrir því að á háannatíma geti allt að 370 einstaklingar verið á svæðinu samtímis og að um 1.350 kylfingar fari í gegnum vellina á hefðbundnum degi. Heildarsvæði 265 hektarar Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis situr í framkvæmdahópi um verkefnið um þennan nýja golfvöll í Snókalöndum en hópurinn hefur að undanförnu unnið að frumþarfagreiningu á uppbyggingu svæðisins. „Það er mér sönn ánægja að geta nú deilt helstu niðurstöðum með ykkur,“ segir Ólafur Þór í samtali við Vísi. En það voru fyrrverandi bæjarstjórar Hafnarfjarðar, þau Rósa Guðbjartsdóttir og Valdimar Víðisson, sem í upphafi ýttu þessu verkefni úr vör fyrir um tveimur árum. Hér má sjá hvar ráð er fyrir gert að hið nýja golfsvæði rísi. Lengi hefur verið gert ráð fyrir því að Setbergsvöllurinn fari undir byggingar en verkefnið er að hluta til hugsað sem samstarfsverkefni Keilis og Golfklúbbsins Setbergs. Ekki hefur farið mikið fyrir þessu verkefni en framkvæmdahópurinn hefur engu að síður látið hendur standa fram úr ermum, enda ekki vanþörf á þegar litið er til hinnar miklu golfsprengju sem landið stendur frammi fyrir nú um stundir. „Heildarsvæðið er áætlað um 265 hektarar, þar sem um helmingur lands, eða um 134,5 hektarar, verður slegið gras og nýtt til golfleiks. Jafnframt er horft til framtíðar með verkefni sem hægt verður að áfangaskipta, þar sem heildarsýn liggur fyrir strax á hönnunarstigi.“ Næsta skref að finna golfvallaarkitekt Hópurinn er ekki að grínast en í honum eru sjö, þeirra á meðal Guðmundur Árni Stefánsson, núverandi varaformaður Samfylkingarinnar, og Högni Friðþjófsson, formaður Golfklúbbsins Setbergs. Markmiðið er að golfið verði hluti af stærra útivistarsvæði þar sem almenningur getur notið hreyfingar og náttúru á margvíslegan hátt. Gert er ráð fyrir göngu- og skokkleiðum, hjólreiðastígum og annarri útivist sem fellur vel að landslagi svæðisins og gerir það aðgengilegt fyrir fjölbreyttan hóp notenda allt árið um kring. Ólafur Þór segir að ef allt gangi að óskum megi gera sér vonir um að svæðið opni þremur árum frá því að fyrsta skólfustunga er tekin.vísir/ívar fannar Ólafur Þór segir mikilvægt í þessu sambandi að hafa hugfast að nýr meirihluti í Hafnarfirði hefur sett verkefnið inn í málefnasamning sinn. „Það er afar jákvætt og skiptir miklu máli fyrir framgang verkefnisins, þar sem það veitir því aukinn stöðugleika og festu í áframhaldandi undirbúningi.“ Næstu skref eru svo þau að fá reyndan golfvallaarkitekt til að leiða hönnunarvinnu og verið er að skoða möguleika á hönnunarsamkeppni til að tryggja sem besta niðurstöðu fyrir framtíð golfs í Hafnarfirði. Ef allt gengur upp gæti opnað eftir um fjögur ár Að sögn Ólafs liggur fjármálaáætlun ekki fyrir en áhersla hefur verið lögð á að koma þessum fyrirætlunum í gegnum skipulag. „Það er að klárast,“ segir Ólafur Þór. „Skipulagið er fyrsti fasinn. Svo hönnun og kostnaðargreining. Þetta eru eflaust 4 til 5 áfangar.“ Stóra spurningin er svo: Hvenær geta menn gert ráð fyrir því að slá fyrsta höggið á hinu nýja golfsvæði Hafnfirðinga? „Það fer allt eftir því hvernig deiliskipulagsvinna og nánari undirbúningur gengur. Að sjálfsögðu veltur það á fjármögnun verkefnisins en ef fjármagn liggur fyrir og hægt er að hefja vinnu er hægt að opna golfvöll þremur árum eftir fyrstu skóflustungu.“
Golf Golfvellir Hafnarfjörður Skipulagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira